Skoðun

Sameinaðir kraftar í lofti, láði og legi

Hermann Guðjónsson skrifar
Í dag tekur til starfa Samgöngustofa, stjórnsýslustofnun samgöngumála í samræmi við lög frá 30. nóvember sl.

Þar með sameinast stjórnsýsla og eftirlit samgöngumála í eina stofnun, hvort sem þau varða flugmál, hafnamál og mál er varða sjóvarnir, siglingamál, umferðarmál eða vegamál.

Til stofnunarinnar færast öll verkefni sem áður heyrðu undir Flugmálastjórn Íslands og Umferðarstofu, svo og stjórnsýslu- og eftirlitsverkefni Siglingastofnunar Íslands auk leyfisveitinga og umferðareftirlits sem áður voru á hendi Vegagerðarinnar.

Samhliða færast framkvæmda- og rekstrarverkefni Siglingastofnunar til Vegagerðarinnar.

Hlutverk

Samgöngustofu er ætlað að stuðla að öruggum, sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum samgöngum. Þá skal stofnunin stuðla að því að samgöngur þróist í samræmi við samfélagsleg og umhverfisleg markmið.

Í stuttu máli má því segja að Samgöngustofa eigi að vinna að þróun öflugra og öruggra samgangna. Það er stórt hlutverk og mikilvægt. Á umliðnum árum og áratugum hefur aukin tækniþekking, ítarlegri rannsóknir, vandaðra eftirlit og betri stjórnsýsla eflt samgöngur og fækkað alvarlegum slysum þeirra sem eru á faraldsfæti. Með sameiningu stjórnsýslu og eftirlits í siglingum, flugi og umferð á vegum hefur verið stigið mikilvægt skref í að sameina krafta til að bæta samgöngur og auka öryggi fólks á ferðinni í lofti, á láði og legi.

Samnýting á þekkingu sem skapast hefur í áranna rás á vönduðum aðferðum hefur og mun áfram skila góðum arði fyrir íslenskt samfélag.

Tækifærin

Mörg tækifæri felast í stofnun Samgöngustofu og til að nýta megi þau sem best er áríðandi að hugsa út fyrir rammann.

Þó að viðfangsefni hafi verið unnin með tilteknum hætti, jafnvel um langt skeið, er ekkert verklag svo gott að ekki megi bæta. Samvinna við aðila, félög, samtök og stofnanir sem tengjast starfseminni er nauðsynleg og hefur reynst heilladrjúg.

Hið sama má segja um alþjóðasamstarf, en mikilvægt er að halda á lofti íslenskum hagsmunum þegar reglur sem okkur viðkoma eru settar á þeim vettvangi.

Hjá Samgöngustofu munu starfa um 160 manns, eljusamt fólk með mikla faglega þekkingu. Við hefjum störf full bjartsýni og erum þess fullviss að sameinaðir kraftar verði framfaraspor fyrir íslenskt samfélag.




Skoðun

Sjá meira


×