Glíman við geðið Steindór J. Erlingsson skrifar 17. júní 2013 10:30 Nú í sumar eru 29 ár frá því ég áttaði mig skyndilega á því að erfiður kvíði var orðinn hluti af lífi mínu, þá á 18. aldursári. Nokkrum árum síðar varð erfið lífsreynsla í Eþíópíu líklega til þess að mikið þunglyndi og kvíði hefur markað líf mitt síðan. Þegar þrautagangan byrjaði upp úr 1990 voru lyf og innlögn á spítala það eina sem mér stóð til boða. Í einni innlögninni barst sú gleðifrétt að ég gæti mögulega tekið þátt í dagdeildarprógammi geðdeildar Borgarspítalans. Þurfti ég að ganga í gegnum stíf sálfræðipróf þar sem lagt var mat á hvort ég ætti heima þar. Í ljós kom að ég var of veikur til þess að taka þátt í starfinu. Þá spurði ég lækninn hvað hann hygðist gera fyrir mig. „Ég ætla að útskrifa þig.“ Þessi orð óma enn í huganum. Síðan þá hefur þjónustan batnað. Ef horft er á geðdeildirnar er það mín tilfinning að dvölin þar hafi breyst til batnaðar. Nú yrði ég t.d. ekki sendur út í myrkrið á þeim forsendum að ég væri of veikur til þess að taka þátt í hinu frábæra starfi sem fram fer á Hvítabandinu, dagdeild geðdeildar Landspítalans. Ef það hentaði ekki af einhverjum ástæðum væri m.a. hægt að leita á náðir Klúbbsins Geysis, Hugarafls og Hlutverkaseturs, en slíkir staðir hafa verulega bætt hag einstaklinga sem eiga við erfiðar geðraskanir að stríða.Meiri ábyrgð Þrátt fyrir þessar umbætur glímir geðlæknisfræðin við ýmis vandamál sem of lítið er fjallað um hér á landi. Nýjasta dæmið kom upp í lok síðasta mánaðar þegar bandarísku geðlæknasamtökin gáfu út fimmtu útgáfu greiningar- og flokkunarkerfis geðraskana (DSM-5). Flestir helstu fjölmiðlar heimsins fjölluðu ítarlega um málið. Þó ekki vegna þess að hér væri um merkan vísindalegan áfanga að ræða heldur sökum þeirrar miklu gagnrýni sem beint hefur verið að DSM-5. Gagnrýni á flokkun og greiningu geðraskana, of mikla ávísun geðlyfja, tengsl geðlækna við lyfjaiðnaðinn, litla virkni og hættulegar aukaverkanir sumra geðlyfja er ekki ný af nálinni. En þegar Allen Frances, einn þekktasti geðlæknir samtímans, gengur í hóp gagnrýnenda ættu allir að leggja við hlustir. Frances ritstýrði fjórðu útgáfu DSM (1994), sem hefur haft mun meiri áhrif á heimsvísu en flokkunar- og greiningarkerfi WHO (ICD-10). Í síðasta mánuði sendi Frances frá sér bókina Saving Normal: An Insider‘s Revolt Against Out-of-Control Psychiatric Diagnosis, DSM-5, Big Pharma, and the Medicalization of Ordinary Life. Þó að Frances beini orðum sínum að bandaríska geðheilbrigðiskerfinu á margt af því sem hann segir vel við hér á landi. Hef ég þar helst í huga mikla ávísun geðlyfja og sjúkdómsvæðingu eðlilegra tilfinninga. Þó að sumt hafi breyst til hins betra hér á landi frá því að ég veiktist fyrst tel ég því nauðsynlegt fyrir íslenska geðheilbrigðisstarfsmenn og almenning að kynna sér gagnrýni Frances. Sjálfur stend ég mun betur að vígi eftir að hafa kynnt mér slíka gagnrýni, enda hefur hún gert mér kleift að taka meiri ábyrgð á eigin meðferð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar