Miðaverð hækkar á leikritið Mary Poppins Freyr Bjarnason skrifar 12. júní 2013 09:30 Miðaverð hækkar meðal annars á söngleikinn vinsæla Mary Poppins.
Miðaverð á haustsýningar Mary Poppins hefur hækkað um átta prósent og er komið í 5.950 krónur. Sýningin er ein sú viðamesta sem hefur verið sett upp hérlendis og miðaverð hefur fyrir vikið verið í hærri kantinum. Hækkunin er til komin vegna þeirra launahækkana sem hafa verið á síðustu misserum. Miðaverð hækkar einnig á aðrar sýningar Borgarleikhússins og verður að meðaltali átta prósentum hærra en áður. Aðspurður kannast Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri ekki við að kvartað hafi verið yfir miðaverðinu á söngleikinn. „Hér er um gríðarlega umfangsmikla og glæsilega sýningu að ræða og öllu tjaldað til. Ég vil benda á að miðaverðið á Íslandi á Mary Poppins er mjög lágt miðað við miðaverðið í London og á Broadway. Þar er fólk að borga tugi þúsunda fyrir miða á svona sýningu. Við erum afskaplega stolt af því að geta boðið upp á svona glæsilega sýningu á Íslandi,“ segir hann og bætir við að fólk geti keypt sér leikhúskort á góðum kjörum þar sem Mary Poppins sé með í pottinum. Margir hafa beðið spenntir eftir geisladiski með tónlist úr söngleiknum. Magnús Geir vonast til að hann verði tilbúinn áður en sýningar hefjast aftur í haust. „Vinnan er háð samþykki stórra aðila úti í heimi en við erum að undirbúa útgáfu.“
Mest lesið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Risastór menningarhátíð á Flateyri Menning Skákborðsréttir nýjasta matartískan Lífið Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Lífið Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Fleiri fréttir Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Sjá meira