Ísland og vopnaviðskipti Hermann Ottósson skrifar 4. júní 2013 09:05 Þriðjudagurinn 2. apríl 2013 var og er sögulegur dagur en þá var alþjóðlegur vopnaviðskiptasamningur samþykktur með miklum yfirburðum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Það er fyrsti samningur sinnar tegundar og bannar ríkjum að selja eða flytja vopn og skotfæri ef þau hafa grun um að þeim verði beitt til að fremja stríðsglæpi. Sá góði samningur sem var samþykktur fyrir tveimur mánuðum uppfyllir að flestu leyti óskir Rauða krossins um alþjóðasamning sem getur orðið til þess að takmarka flæði léttvopna, sem nú grafa undan stöðugleika um allan heim og valda milljónum manna kvölum og angist. Það er enn ánægjulegra fyrir Rauða krossinn á Íslandi að vita að íslensk stjórnvöld studdu með ráðum og dáð gerð samningsins og höfðu meira að segja áhrif á lokagerð hans. Með mikilli eljusemi utanríkisráðuneytisins og starfsmanna þess tókst Íslandi með stuðningi annarra ríkja og félagasamtaka að koma inn mikilvægu ákvæði sem bannar ríkjum að selja eða miðla vopnum sem verði beitt til að fremja kynbundið ofbeldi eða ofbeldi gegn konum og börnum þar sem það varðar brot á alþjóðlegum mannúðar- og mannréttindalögum. Það er í fyrsta sinn sem tengslin milli vopnaviðskipta og kynbundins ofbeldis eru viðurkennd í alþjóðasamningi og það má með réttu segja að Ísland eigi heiðurinn af þessu ákvæði sem fjöldamörg ríki og félagasamtök studdu dyggilega. Rauðakrosshreyfingin skorar á ríki heims að undirrita, fullgilda og svo innleiða samninginn eins fljótt og verða má. Þannig geta þjóðríki lagt lóð sín á vogarskálarnar í baráttunni fyrir aukinni velferð milljóna manna um heim allan sem búa við vopnuð átök þar sem kerfisbundnum mannréttindabrotum er beitt gegn óbreyttum borgurum. Rauði krossinn fagnar því einnig að íslensk stjórnvöld skuli hafa verið í hópi fyrstu ríkja sem undirrituðu samninginn í New York í gær. Rauði krossinn telur utanríkisráðuneytið eiga hrós skilið fyrir vasklega framgöngu í þessu máli og vonandi verður samningurinn fullgiltur og innleiddur fljótlega. ?Íslenska? ákvæðið um ofbeldi gegn konum og börnum er nokkuð sem við getum verið stolt af. Niðurstaðan staðfestir þá trú okkar að lítil ríki geti náð miklum árangri á alþjóðavettvangi með einbeitni, alþjóðasamvinnu og sterkum vilja til að láta gott af sér leiða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar