Hver á að sinna þeim? Magnús Baldursson skrifar 18. apríl 2013 10:00 Það er áhyggjuefni að sú staða hefur skapast að tveir hópar barna í samfélaginu fá ekki þá þjónustu frá heilbrigðiskerfinu sem þau þarfnast. Annars vegar eru þetta börn sem hafa hamlandi einhverfueinkenni en eru ekki það greindarskert að þau falli undir skilgreindan markhóp Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Þessum börnum var hægt að vísa í fullnaðargreiningu á einhverfusviði Greiningarstöðvar en eftir að það breyttist hefur verið skortur á viðhlítandi greiningar- og ráðgjafarúrræðum. Fáeinum er þó vísað á Barna- og unglingageðdeild LSH en það á einungis við um þau sem auk einhverfurófsröskunar búa við flókinn og fjölþættan vanda af öðrum toga. Erfiðleikar þessara barna geta verið verulega hamlandi þótt greindarfarslega standi þau ágætlega. Mörg þeirra hafa litla aðlögunarhæfni, eiga í erfiðleikum með félagsleg samskipti og sérkennileg og áráttukennd hegðun getur valdið ýmsum erfiðleikum. Hvað hinn hópinn varðar er varla hægt að segja að hann hafi nokkurn tíma fengið viðeigandi þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Þar er um að ræða börn á aldrinum 12-18 ára með sterkar vísbendingar um athyglisbrest (ADHD). Þau þarfnast greiningar á vandanum og að þeim standi til boða úrræði sem gagnast einstaklingum með ADHD. Það sama á við um þennan hóp og þann fyrri að ef aðrir alvarlegir erfiðleikar eru til staðar væri hægt að láta reyna á tilvísun á Barna- og unglingageðdeild. Flest þessara barna eru hins vegar með „vægari“ vanda og eiga ekki tilkall til þjónustu Barna- og unglingageðdeildar.Varla líðandi Þetta er varla líðandi í því velferðarsamfélagi sem við viljum státa okkur af. Í öðru tilfellinu er aldur látinn ráða því að úrræði sé ekki fyrir hendi en í hinu tilfellinu þroski barnsins þótt sýnt sé að erfiðleikar þess snúi að öðru en eiginlegri þroskastöðu. Myndum við sætta okkur við að stjórnendur heilbrigðiskerfsins ákveddu að þunglyndi væri ekki meðhöndlað hjá fólki sem væri eldra en sjötíu ára? Gætum við sætt okkur við að ákveðið yrði að fólk sem hefði eðlilega greind en væri frá vinnu vegna kvíðaröskunar fengi ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu? Við þetta er margt að athuga. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna benti árið 2011 á ágalla í geðheilbrigðisþjónustu barna á Íslandi. Nefndarmenn höfðu meðal annars áhyggjur af löngum biðlistum eftir greiningu og meðferð. Mælst var til að geðheilbrigðisþjónusta við börn yrði efld og þeim tryggður betri aðgangur að greiningum og þeirri meðferð sem þörf væri á. Að auka ætti vægi sálfræðimeðferðar, efla fræðslu og félagsleg úrræði og styðja betur við foreldra og kennara (sjá gr. 38 og 39). Einnig má benda á að þetta ástand kemur illa saman við 3 gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem er ein af grundvallargreinum sáttmálans.Biðtími lengist Frá árinu 2002 hefur greiningu á ADHD verið sinnt á Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslunnar fyrir börn að 12 ára aldri. Þar fer líka fram frumgreining á frávikum í þroska og hegðun yngri barna. Auk þessa er boðið upp á einstaklingsráðgjöf, uppeldisnámskeið fyrir foreldra, námskeið fyrir foreldra barna með ADHD og sérstakt námskeið fyrir börn með ADHD þar sem meðal annars er unnið með einbeitingu og félagsfærni. Takmörkun þjónustunnar við 12 ára aldur stafar að verulegu leyti af þeirri fjárveitingu sem fæst til starfseminnar. Ógerlegt er miðað við núverandi mannafla að útvíkka þjónustuna til elsta aldurshópsins á sama tíma og biðtími lengist fyrir núverandi skjólstæðinga ár frá ári. Hjá starfsfólki Þroska- og hegðunarstöðvar er fullur vilji til að koma til móts við þessa hópa í faglegu samstarfi við aðrar stofnanir sem koma að málum barna með þroska-, hegðunar og geðvanda. Mikilvægt er að þeir sem hafa fjárveitingavaldið fari að huga að þörfum þessara barna. Ákveðið verði hvar þeim skuli sinnt og komið sé sem fyrst á þeim úrræðum sem þau eiga sannarlega heimtingu á. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar