Skoðun

Hver borgar brúsann?

Er það „glæpsamlegt athæfi" hér á landi að vera hófsamur, raunsær og heiðarlegur? Hér er smá dæmisaga:

Einu sinni voru þrjár systur. Þær fæddust í landi sem hafði nóg af auðlindum þannig að allir íbúar gætu lifað góðu lífi.

En þetta varð aldrei raunin.

Elsta systirin kynntist manni sem var frekar stórtækur og samviskulaus. Hann fór að braska með peninga sem aðrir áttu, borgaði sjálfum sér ævintýralegar arðgreiðslur, setti svo allt á hausinn og fór með hagnaðinn úr landi í skattaskjól. Systirin kunni vel við að lifa áfram í vellystingum og hafði ekki nokkurt samviskubit.

Önnur systirin vildi líka vera rík og vel stödd. Tekjur hennar og eiginmannsins buðu reyndar ekki upp á að fullnægja öllum þörfum um betra líf. En þau vildu vera með í góðærinu, seldu litlu íbúðina sína og keyptu sér stórt einbýlishús. Þar var ekkert sparað við að fá innréttingarnar sem flottastar.

Þau keyptu sér líka veglegan jeppa því þetta var jú stöðutákn þeirra sem voru menn með mönnum. Þau voru alltaf fín í klæðnaði, allt eftir nýjustu tísku og það skipti ekki máli hvort eitt skópar kostaði 10.000 eða 30.000 krónur. Auðvitað fóru þau líka reglulega í utanlandsferðir. Þau slógu lán til að geta leyft sér þetta allt saman og pældu ekki í því hvernig hægt væri að borga skuldirnar til baka. „Þetta mun reddast". Og þau kusu þann flokk sem bauð mestan hagvöxt og lofaði öllu fögru í sambandi við að skapa áhugaverð og vel borguð störf og áframhaldandi góðæri þar sem allir gætu grætt á daginn og grillað á kvöldin.

Óraunsæjar aðgerðir

Þriðja systirin kunni sér hóf. Hún og maðurinn hennar keyptu sér lítið raðhús. Þau áttu lengi vel engan bíl því þau réðu ekki við að fjármagna hann. Þau reyndu að nýta alla hluti eins og hægt var og stóðu alltaf í skilum með allar afborgarnir. Þau keyptu ekkert nema eiga fyrir því en voru samt ánægð með lífið. Þeim tókst að vera skuldlaus eftir 20 ár.

Nú er stutt í kosningar. Alls konar loddarar bjóða gull og græna skóga ef þeir komast til valda. Bjóða einhver lifandis ósköp af niðurfellingu skulda. Bjóða að redda skuldavandamálum heimilanna með einhverjum óraunsæjum aðgerðum, bjóða afnám verðtryggingar og lækkun skatta.

Hver mun borga brúsann af svona aðgerðum? Ef það á að fella niður skuldir þeirra sem tóku flugið allt of hátt þá er líklegt að það muni verða frekari niðurskurður, til dæmis í velferðarkerfinu og menntakerfinu á móti. Einvers staðar þarf að ná í peningana. Þeir verða ekki til af engu.

Þriðja systirin mun væntanlega ekki vera mjög sátt við það að einstaklingum hér á landi sem eru hófsamir, raunsæir og heiðarlegir verði refsað fyrir óráðsíu annarra.




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×