Landsdómur? Bjarni E. Guðleifsson skrifar 25. mars 2013 15:30 Ég ætlaði alltaf að hlekkja mig við vinnuvélarnar við Kárahnjúka en mig brast kjark. Það hefði líklega ekki breytt miklu. Davíð, Halldór, Friðrik, Valgerður og Siv höfðu öll völd. Þau hunsuðu vísindalegar viðvaranir fræðinga. Í útvarpsviðtali taldi Davíð sérfræðinga Skipulagsstofnunar "ókjörna" fulltrúa og þess vegna væri ekki mark á þeim takandi. Siv taldi efnahagslegan ávinning mikilvægari en nokkra "fermetra" gróðurlendis á heiðum og líf Lagarfljóts. Valgerður gerði grein fyrir atkvæði sínu í atkvæðagreiðslunni á Alþingi: "Þetta er stór dagur í íslenskri atvinnusögu, ég segi já." Þetta var hins vegar sorgardagur í sögu íslenskrar náttúru. Mest er ábyrgð og skömm Sivjar Friðleifsdóttur sem "drap" Lagarfljót. Einn borgarfulltrúi (reyndar "kjörinn") sagði að "skömm þessara manna mun uppi meðan land byggist". Nú ætti skömmin að vera öllum ljós. Skyldi þetta fólk biðjast afsökunar? Ekki heyrist mér það á Siv, það skammast sín ekki og biðst ekki afsökunar fremur en útrásarvíkingarnir. Landsdómur er sérdómstóll sem fer með og dæmir mál sem Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra. Ég held að þetta fólk ætti að draga fyrir landsdóm miklu fremur en Geir. Mig minnir að Geir hafi verið dæmdur fyrir athafnaleysi. Má ekki á sama hátt dæma Siv umhverfisráðherra (sem á að vera verndari íslenskrar náttúru) fyrir að aðhafast ekkert til verndar náttúrunni, eða öllu heldur að aðhafast gegn henni með því að sniðganga mat Skipulagsstofnunar? Líklega eru þessi mál fyrnd eða Landsdómur á ekki við. Ég veit ekkert um það, en mér finnst að þetta fólk eigi að sæta ábyrgð. Ég hef trú á að það ætli bara að standa af sér umræðuna eins og hvert annað óveður, í von um að þetta gleymist í umræðunni um Evrópusamband og stjórnarskrá. Nú heyrist mér í kosningabaráttunni að sigurstranglegustu flokkarnir ætli að koma skriði á atvinnulífið, væntanlega með því að ýta náttúruverndarsjónarmiðum til hliðar. Þeim finnst þau alltaf flækjast fyrir. Látum umrætt skemmdarverk verða víti til varnaðar. Maðurinn getur vel lifað í og af náttúrunni án þess að valda óafturkræfum spjöllum. Spurning um hugkvæmni og vilja. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Ég ætlaði alltaf að hlekkja mig við vinnuvélarnar við Kárahnjúka en mig brast kjark. Það hefði líklega ekki breytt miklu. Davíð, Halldór, Friðrik, Valgerður og Siv höfðu öll völd. Þau hunsuðu vísindalegar viðvaranir fræðinga. Í útvarpsviðtali taldi Davíð sérfræðinga Skipulagsstofnunar "ókjörna" fulltrúa og þess vegna væri ekki mark á þeim takandi. Siv taldi efnahagslegan ávinning mikilvægari en nokkra "fermetra" gróðurlendis á heiðum og líf Lagarfljóts. Valgerður gerði grein fyrir atkvæði sínu í atkvæðagreiðslunni á Alþingi: "Þetta er stór dagur í íslenskri atvinnusögu, ég segi já." Þetta var hins vegar sorgardagur í sögu íslenskrar náttúru. Mest er ábyrgð og skömm Sivjar Friðleifsdóttur sem "drap" Lagarfljót. Einn borgarfulltrúi (reyndar "kjörinn") sagði að "skömm þessara manna mun uppi meðan land byggist". Nú ætti skömmin að vera öllum ljós. Skyldi þetta fólk biðjast afsökunar? Ekki heyrist mér það á Siv, það skammast sín ekki og biðst ekki afsökunar fremur en útrásarvíkingarnir. Landsdómur er sérdómstóll sem fer með og dæmir mál sem Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra. Ég held að þetta fólk ætti að draga fyrir landsdóm miklu fremur en Geir. Mig minnir að Geir hafi verið dæmdur fyrir athafnaleysi. Má ekki á sama hátt dæma Siv umhverfisráðherra (sem á að vera verndari íslenskrar náttúru) fyrir að aðhafast ekkert til verndar náttúrunni, eða öllu heldur að aðhafast gegn henni með því að sniðganga mat Skipulagsstofnunar? Líklega eru þessi mál fyrnd eða Landsdómur á ekki við. Ég veit ekkert um það, en mér finnst að þetta fólk eigi að sæta ábyrgð. Ég hef trú á að það ætli bara að standa af sér umræðuna eins og hvert annað óveður, í von um að þetta gleymist í umræðunni um Evrópusamband og stjórnarskrá. Nú heyrist mér í kosningabaráttunni að sigurstranglegustu flokkarnir ætli að koma skriði á atvinnulífið, væntanlega með því að ýta náttúruverndarsjónarmiðum til hliðar. Þeim finnst þau alltaf flækjast fyrir. Látum umrætt skemmdarverk verða víti til varnaðar. Maðurinn getur vel lifað í og af náttúrunni án þess að valda óafturkræfum spjöllum. Spurning um hugkvæmni og vilja.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar