Frekar í sjúkrabíl í óbyggðum en í heimabyggð? Guðlaug Einarsdóttir skrifar 13. mars 2013 06:00 Kona fæðir barn í sjúkrabíl í óbyggðum í óveðri á leið á fæðingardeild, ekki í fyrsta sinn og líklega ekki í það síðasta. Allsvakalegt, hugsa flestir og þakka sínum sæla fyrir örugga sjúkraflutninga þessa lands. En af hverju er kona sem er langt komin í fæðingu stödd í óbyggðum og það í óveðri? Var hún mögulega send þangað? Úr hvers konar óöryggi var verið að flytja konuna og í hvers konar öryggi? Í okkar dreifbýla landi hefur fæðingarstöðum, sem skilgreindir eru sem slíkir af heilbrigðisyfirvöldum, fækkað stórlega. Þeir eru nú níu talsins. Það má hins vegar ljóst vera að konur vænta sín úti um allt land og þurfa því að fara mislanga leið til að fá fæðingarþjónustu. Í flestum byggðarlögum er önnur barneignarþjónusta veitt, þ.e. meðgöngu- og ungbarnavernd, og því eru til staðar sérhæfðir heilbrigðisstarfsmenn til að sinna þeirri þjónustu; ljósmæður, læknar og hjúkrunarfræðingar. Hvernig stendur þá á því að allt kapp er lagt á að koma fæðandi konu burtu frá öryggi sérþekkingar þessa fagfólks og úr því húsaskjóli sem heimili konunnar, heilbrigðisstofnun eða heilsugæsla byggðarlagsins veitir, til þess eins að koma konunni nær stjórnsýslulega skilgreindum fæðingarstað? Hvernig eru slíkar ákvarðanir teknar og á hvaða forsendum? Það er kannski ekki virk ákvörðunartaka að senda fæðandi konu á fyrir fram skilgreindan fæðingarstað, það er jú það sem á að gera, það er normið. Það er hins vegar orðin alvarleg hugsanavilla ef það þykir almennt betri kostur að senda fæðandi konu út í óbyggðir í óveðri og ófærð en að gera undantekningu á reglunni og veita henni faglega fæðingarhjálp utan hinna skilgreindu fæðingarstaða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir Skoðun Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kvíðakast einstæðingsins Sólveig Skaftadóttir Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun Treður hið opinbera sér í hleðslugatið? Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Þurfum við ný lyf? Ragnhildur Reynisdóttir skrifar Skoðun Treður hið opinbera sér í hleðslugatið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir skrifar Skoðun Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Kvíðakast einstæðingsins Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór? Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn með skýra sýn og hlýja forystu Alexander M Árnason skrifar Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar Skoðun Jarðgangnaáætlun - staðfesta eða stefnuleysi Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun „Þetta reddast“ og strategísk sýn á alþjóðamál Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður er að verða fullbyggður – hvað gerum við nú? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson skrifar Sjá meira
Kona fæðir barn í sjúkrabíl í óbyggðum í óveðri á leið á fæðingardeild, ekki í fyrsta sinn og líklega ekki í það síðasta. Allsvakalegt, hugsa flestir og þakka sínum sæla fyrir örugga sjúkraflutninga þessa lands. En af hverju er kona sem er langt komin í fæðingu stödd í óbyggðum og það í óveðri? Var hún mögulega send þangað? Úr hvers konar óöryggi var verið að flytja konuna og í hvers konar öryggi? Í okkar dreifbýla landi hefur fæðingarstöðum, sem skilgreindir eru sem slíkir af heilbrigðisyfirvöldum, fækkað stórlega. Þeir eru nú níu talsins. Það má hins vegar ljóst vera að konur vænta sín úti um allt land og þurfa því að fara mislanga leið til að fá fæðingarþjónustu. Í flestum byggðarlögum er önnur barneignarþjónusta veitt, þ.e. meðgöngu- og ungbarnavernd, og því eru til staðar sérhæfðir heilbrigðisstarfsmenn til að sinna þeirri þjónustu; ljósmæður, læknar og hjúkrunarfræðingar. Hvernig stendur þá á því að allt kapp er lagt á að koma fæðandi konu burtu frá öryggi sérþekkingar þessa fagfólks og úr því húsaskjóli sem heimili konunnar, heilbrigðisstofnun eða heilsugæsla byggðarlagsins veitir, til þess eins að koma konunni nær stjórnsýslulega skilgreindum fæðingarstað? Hvernig eru slíkar ákvarðanir teknar og á hvaða forsendum? Það er kannski ekki virk ákvörðunartaka að senda fæðandi konu á fyrir fram skilgreindan fæðingarstað, það er jú það sem á að gera, það er normið. Það er hins vegar orðin alvarleg hugsanavilla ef það þykir almennt betri kostur að senda fæðandi konu út í óbyggðir í óveðri og ófærð en að gera undantekningu á reglunni og veita henni faglega fæðingarhjálp utan hinna skilgreindu fæðingarstaða.
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar
Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar
Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar
Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar
Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar
Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar
Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun