Kjósum Stefán Einar formann VR Jóhanna S. Rúnarsdóttir skrifar 13. mars 2013 06:00 Hvað hefur einkennt störf Stefáns Einars Stefánssonar, formanns VR? Hann hugsar fyrst og síðast um að bæta kjör félagsmanna og hefur skýra sýn og elju í þeirri vinnu. Vart þarf að taka fram að það er ekki einn maður sem stýrir svo stóru félagi en með samhentu átaki stjórnar og starfsfólks félagsins hefur tekist að hefja VR til vegs og virðingar til hagsbóta fyrir þá 30 þúsund einstaklinga sem eiga aðild að félaginu. Félagsmenn svo öflugs stéttarfélags þurfa á því að halda að félag þeirra sé stöðugt, að stjórn þess sé samheldin og starfsfólk þess búi við góð starfskilyrði og geti horft fram á veginn. Þess vegna var mjög ánægjulegt þegar nýleg starfskönnun Capacent sýndi að umtalsverð ánægja og góður starfsandi ríkti á skrifstofu VR. Eitt af mikilvægustu verkefnum VR síðustu ára er Jafnlaunavottun VR sem kynnt var í byrjun febrúar sl. Verkefnið hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli og nú þegar hafa fjölmörg fyrirtæki skráð sig til þátttöku. Jafnlaunavottunin miðar að því að gera ítarlega grein fyrir hinum margvíslegu þáttum sem valda launamun kynjanna – og að lokum eyða honum. Þetta á ekki aðeins eftir að auka hróður VR heldur er þetta mikilvægur þáttur í að útrýma óréttlátum og oft og tíðum óútskýrðum launamun kynjanna. Fyrst og fremst mun þetta verkefni auka styrk kvenna í öllum stöðum atvinnulífsins. VR hefur stigið stórt skref í jafnréttisbaráttunni og mun að öllu óbreyttu leiða þetta mikilvæga starf næstu misseri. En baráttunni er hvergi nærri lokið. Fram undan er gerð mikilvægra kjarasamninga en stefnt er að undirritun þeirra í lok þessa árs. Félagsmenn VR þurfa á því að halda að Stefán Einar, núverandi formaður félagsins, nýti reynslu sína og þekkingu við gerð þeirra samninga. Stefán Einar hefur sýnt að hann gefur hvergi eftir í baráttu fyrir félagsmenn sína og árangur síðustu tveggja ára sýnir það svo glögglega. Við hvetjum alla félagsmenn VR til að veita Stefáni Einari Stefánssyni umboð til að sinna þessum mikilvægu verkefnum og fleiri til. Kjósum Stefán Einar til áframhaldandi forystu í félaginu okkar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Hvað hefur einkennt störf Stefáns Einars Stefánssonar, formanns VR? Hann hugsar fyrst og síðast um að bæta kjör félagsmanna og hefur skýra sýn og elju í þeirri vinnu. Vart þarf að taka fram að það er ekki einn maður sem stýrir svo stóru félagi en með samhentu átaki stjórnar og starfsfólks félagsins hefur tekist að hefja VR til vegs og virðingar til hagsbóta fyrir þá 30 þúsund einstaklinga sem eiga aðild að félaginu. Félagsmenn svo öflugs stéttarfélags þurfa á því að halda að félag þeirra sé stöðugt, að stjórn þess sé samheldin og starfsfólk þess búi við góð starfskilyrði og geti horft fram á veginn. Þess vegna var mjög ánægjulegt þegar nýleg starfskönnun Capacent sýndi að umtalsverð ánægja og góður starfsandi ríkti á skrifstofu VR. Eitt af mikilvægustu verkefnum VR síðustu ára er Jafnlaunavottun VR sem kynnt var í byrjun febrúar sl. Verkefnið hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli og nú þegar hafa fjölmörg fyrirtæki skráð sig til þátttöku. Jafnlaunavottunin miðar að því að gera ítarlega grein fyrir hinum margvíslegu þáttum sem valda launamun kynjanna – og að lokum eyða honum. Þetta á ekki aðeins eftir að auka hróður VR heldur er þetta mikilvægur þáttur í að útrýma óréttlátum og oft og tíðum óútskýrðum launamun kynjanna. Fyrst og fremst mun þetta verkefni auka styrk kvenna í öllum stöðum atvinnulífsins. VR hefur stigið stórt skref í jafnréttisbaráttunni og mun að öllu óbreyttu leiða þetta mikilvæga starf næstu misseri. En baráttunni er hvergi nærri lokið. Fram undan er gerð mikilvægra kjarasamninga en stefnt er að undirritun þeirra í lok þessa árs. Félagsmenn VR þurfa á því að halda að Stefán Einar, núverandi formaður félagsins, nýti reynslu sína og þekkingu við gerð þeirra samninga. Stefán Einar hefur sýnt að hann gefur hvergi eftir í baráttu fyrir félagsmenn sína og árangur síðustu tveggja ára sýnir það svo glögglega. Við hvetjum alla félagsmenn VR til að veita Stefáni Einari Stefánssyni umboð til að sinna þessum mikilvægu verkefnum og fleiri til. Kjósum Stefán Einar til áframhaldandi forystu í félaginu okkar.
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar