Lífið

Í fótspor foreldranna

Börn fræga fólksins reyna mörg hver að feta í fótspor foreldranna og koma sér á framfæri í skemmtanabransanum. Dæmi um það eru Prince Michael Jackson, Romeo Beckham og Maude Apatow sem öll virðast elska sviðsljósið.

Hinn sextán ára Prince Michael Jackson, sonur poppstjörnunnar sálugu Michaels Jackson, er orðinn fréttamaður hjá afþreyingarsjónvarpsstöðinni Entertainment Tonight. Hann hyggur á feril sem framleiðandi, leikstjóri, handritshöfundur og leikari.

Þrjú af börnum Brads Pitt og Angelinu Jolie leika lítil hlutverk í væntanlegri mynd Jolie, Maleficent. Hin fjögurra ára Vivienne leikur prinsessuna Auroru.

Jaden, sonur Wills Smith og Jada Pinkett-Smith, leikur á móti föður sínum í myndinni After Earth í leikstjórn M. Night Shyamalan. Jaden, sem er fimmtán ára, hefur áður leikið aðalhlutverkið í endurgerð The Karate Kid.

Daniellynn Birkhead, sex ára dóttir Anna Nicole Smith og Larrys Birkhead, er strax byrjuð að feta í fótspor móður sinnar, sem var fyrirsæta og leikkona. Birkhead er nýtt andlit Guess Kids.

Romeo Beckham, tíu ára sonur fótboltatöffarans Davids Beckham og Victoriu Beckham, leikur í auglýsingu fyrir vor- og sumarlínu Burberry.

Riley Keough, 23 ára dóttir Lisu Marie Presley og barnabarn söngvarans Elvis Presley, er leikkona og fyrirsæta. Næsta mynd hennar er Mad Max: Fury Road.

Hin fjórtán ára Maude Apatow, dóttir leikkonunnar Leslie Mann og leikstjórans Judds Apatow, fer með hlutverk í This Is 40 ásamt móður sinni. Leikstjóri myndarinnar er að sjálfsögðu Apatow. Maude hefur einnig leikið í Knocked Up og Funny People í leikstjórn föður síns.

Scott Eastwood er 26 ára sonur goðsagnarinnar Clints Eastwood. Fyrsta myndin sem hann lék í var Flags of Our Fathers í leikstjórn föður síns, sem var að hluta til tekin upp á Íslandi. Hann leikur næst í Texas Chainsaw 3D.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×