Um 3.000 ný störf í Reykjavík frá 2010 18. febrúar 2013 07:30 Þótt atvinnuleysi hafi lækkað um 2,1 prósent á tveimur árum í Reykjavík er það enn aðeins yfir landsmeðaltalinu, eða 6 prósent á móti 5,7 prósentum. Mynd/Anton
Skráð atvinnuleysi í Reykjavík í desember 2012 var 6 prósent og hafði lækkað um 2,1 prósent frá sama mánuði 2010. Þetta kemur fram í tölum sem Skrifstofa borgarstjóra tók saman, í samvinnu við Hagstofu Íslands, og Vinnumálastofnun, og kynntar voru í minnisblaði í borgarráði í síðustu viku. Atvinnuleysi í Reykjavík er þó ívið hærra en á landinu öllu þar sem það er 5,7 prósent. Þar kemur einnig fram að á árabilinu 2010 til 2012 hafa orðið til 3.000 ný störf í höfuðborginni. Flest þeirra hafa orðið til á hinum almenna vinnumarkaði, en í minnisblaðinu kemur fram að gera megi ráð fyrir því að vinnuátaksúrræði Vinnumálastofnunar hafi skilað um 570 manns störfum og þar sé hlutur Reykjavíkurborgar 250 manns. "Það er auðvitað atvinnulífið í borginni sem hefur skilað mestu af þessum vexti en við höfum lagt okkur fram við að styðja við bakið á því," segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. Hann segir ferðaþjónustuna hafa komið sterka inn á síðustu árum en einnig skapandi greinar eins og kvikmyndagerð. Jákvætt sé að mikill vöxtur sé í litlum og meðalstórum fyrirtækjum. "Svo átta sig kannski ekki allir á því en byggingariðnaðurinn er farinn aftur af stað með íbúðabyggðum í Reykjavík og framkvæmdum við hótel- og gistirými til að fylgja eftir þessari miklu fjölgun ferðamanna." Reykjavíkurborg hefur sett fjármuni í vinnumarkaðsátök en Dagur segir að kannski séu mikilvægustu ákvarðanirnar þær sem kosta ekkert. Þar vísar hann til breytinga á skipulagi varðandi litlar og meðalstórar íbúðir. Þegar menntunarstig er skoðað sést að mest er fækkun atvinnulausra í hópi þeirra sem eingöngu hafa grunnskólapróf, eða ríflega 1.000 manns. Hjá háskólamenntuðum fækkar atvinnulausum um 300. Þegar litið er til atvinnugreina er fækkun atvinnulausra mest í hópi þeirra sem vinna við mannvirkjagerð, rétt um 500 manns, og í verslun fækkar atvinnulausum um 350 manns. Eins og sést á grafinu hér fyrir ofan er atvinnuleysi mest í póstnúmeri 111, eða Breiðholti.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heimatilbúinn Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Sjá meira