„Ökurita“ í heilbrigðisþjónustu Elsa B. Friðfinnsdóttir skrifar 21. janúar 2013 06:00 Í Reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit frá árinu 2010 er kveðið á um hámarksaksturstíma í farþega- og farmflutningum. Reglugerðin er ýtarleg og kveður meðal annars á um það að ökumaður skuli ?gera hlé á akstri í að minnsta kosti samfelldar 45 mín. eftir akstur í 4,5 klst. nema hvíldartími hans sé að hefjast?. Ökuritar eru settir upp í bifreiðum ?til að skrá, sýna og geyma upplýsingar um aksturs- og hvíldartíma ökumanns, hraða bifreiðar og fleira?. Markmið þessarar reglugerðar er að ?auka umferðaröryggi og bæta vinnuskilyrði ökumanna?. Öll viljum við auka umferðaröryggi og hljótum því að fagna þessum varúðarreglum. Við sem störfum í heilbrigðisþjónustunni hljótum hins vegar að spyrja hvers vegna engin slík öryggistæki og eftirlitstæki er að finna í heilbrigðisþjónustunni. Ef erlendar rannsóknir eru yfirfærðar á íslenskt heilbrigðiskerfi kemur í ljós að margfalt fleiri látast hér á landi árlega vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu en í umferðarslysum. Stjórnvöld hafa hins vegar ekki sett neinar reglur gegn því að hjúkrunarfræðingar vinni í átta klst. samfellt án nokkurrar hvíldar og án þess oft og tíðum að komast í mat eða kaffi. Hefðbundnar næturvaktir eru 9,5 klst. en viðsemjendur hjúkrunarfræðinga hafa þó ekki léð máls á því að semja um svokallaða 15 mín. orkublundi, sem þó þekkjast t.d. í Danmörku. Ekki er óalgengt að hjúkrunarfræðingar komist ekki heim af vakt því enginn er til að taka við. Þá vinna hinir sömu jafnvel samfellt í 16 klst. án hvíldar. Hjúkrunarfræðingur sem unnið hefur átta tíma morgunvakt á svæfingadeild er fenginn til að taka átta tíma kvöldvakt á gjörgæslu og vinnur þannig í minnst 16 tíma samfellt við mjög krefjandi hjúkrun, þar sem verður að fylgjast með ástandi sjúklings hverja stund og vera tilbúinn að bregðast við á hárréttan og fumlausan hátt. Líf liggur við. Er ekki þörf á ?ökuritum? í heilbrigðisþjónustu til að tryggja öryggi sjúklinga og bæta vinnuskilyrði hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í Reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit frá árinu 2010 er kveðið á um hámarksaksturstíma í farþega- og farmflutningum. Reglugerðin er ýtarleg og kveður meðal annars á um það að ökumaður skuli ?gera hlé á akstri í að minnsta kosti samfelldar 45 mín. eftir akstur í 4,5 klst. nema hvíldartími hans sé að hefjast?. Ökuritar eru settir upp í bifreiðum ?til að skrá, sýna og geyma upplýsingar um aksturs- og hvíldartíma ökumanns, hraða bifreiðar og fleira?. Markmið þessarar reglugerðar er að ?auka umferðaröryggi og bæta vinnuskilyrði ökumanna?. Öll viljum við auka umferðaröryggi og hljótum því að fagna þessum varúðarreglum. Við sem störfum í heilbrigðisþjónustunni hljótum hins vegar að spyrja hvers vegna engin slík öryggistæki og eftirlitstæki er að finna í heilbrigðisþjónustunni. Ef erlendar rannsóknir eru yfirfærðar á íslenskt heilbrigðiskerfi kemur í ljós að margfalt fleiri látast hér á landi árlega vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu en í umferðarslysum. Stjórnvöld hafa hins vegar ekki sett neinar reglur gegn því að hjúkrunarfræðingar vinni í átta klst. samfellt án nokkurrar hvíldar og án þess oft og tíðum að komast í mat eða kaffi. Hefðbundnar næturvaktir eru 9,5 klst. en viðsemjendur hjúkrunarfræðinga hafa þó ekki léð máls á því að semja um svokallaða 15 mín. orkublundi, sem þó þekkjast t.d. í Danmörku. Ekki er óalgengt að hjúkrunarfræðingar komist ekki heim af vakt því enginn er til að taka við. Þá vinna hinir sömu jafnvel samfellt í 16 klst. án hvíldar. Hjúkrunarfræðingur sem unnið hefur átta tíma morgunvakt á svæfingadeild er fenginn til að taka átta tíma kvöldvakt á gjörgæslu og vinnur þannig í minnst 16 tíma samfellt við mjög krefjandi hjúkrun, þar sem verður að fylgjast með ástandi sjúklings hverja stund og vera tilbúinn að bregðast við á hárréttan og fumlausan hátt. Líf liggur við. Er ekki þörf á ?ökuritum? í heilbrigðisþjónustu til að tryggja öryggi sjúklinga og bæta vinnuskilyrði hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna?
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar