Skoðun

Stuðningsgrein: Ég kýs Guðbjart Hannesson

Ólafur Þór Jónsson skrifar
Alþingishúsið við Austurvöll hefur á síðustu árum verið vettvangur leiks. Leiks þar sem þingheimi er skipt í tvö lið og annað liðið er í sókn en hitt berst gegn því að sóknin takist. Þennan leik má færa yfir á bandarískan fótbolta, ríkisstjórnin byrjar í sókn og reynir að troðast með málin í gegnum varnartaktík stjórnarandstöðunnar.

Stjórnarandstaðan berst gegn því að ríkisstjórnin skori snertimark. Til þess notar hún ákveðna varnartaktík til þess eins að stöðva framvindu mála svo hún fái síðar að stjórna leiknum. Þessi leikur á sér stað daglega á Alþingi og hefur oft farið í framlengingu.

Með hverjum degi sem líður af þessum langdregna leik bera Íslendingar sífellt minna traust til Alþingis. Í könnun MMR á trausti til helstu stofnana samfélagsins frá júní 2012 kemur fram að um 8% landsmanna bera frekar eða mjög mikið traust til Alþingis. Til að bæta viðhorf almennings til Alþingis þurfa þingmenn að breyta vinnubrögðum sínum. Alþingi þarf fólk til forystu sem er heiðarlegt, traust, málefnalegt og með framtíðarsýn. Þetta má finna í Guðbjarti Hannessyni.

Mikilvægt er að nýr formaður Samfylkingarinnar standi vörð um sterk grunngildi flokksins. Þau eru að standa fyrir jöfnu samfélagi sem byggir á sterku velferðarkerfi, frelsi einstaklingsins og víðtæku lýðræði. Mikilvægt er að formaður leiti lausna á öllum málum í stað þess að eyða orku og kröftum í innihaldslausan ágreining og karp um aukaatriði. Þannig má endurvinna traust almennings. Fyrir mér er ljóst að hæfasti maðurinn til að leiða Samfylkinguna og vonandi þjóðina til framtíðar er Guðbjartur Hannesson.

Guðbjartur er bjartsýnn og heiðarlegur maður sem neitar alfarið að taka þátt í því niðurrifi sem algengt er í stjórnmálaumræðu síðustu missera. Guðbjartur ber virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum og hlustar á skoðanir annarra. Mikilvægt er að nýr formaður vinni að því að byggja upp velferðarkerfi að norrænni fyrirmynd, því það er undirstaðan fyrir því að hér verði heilbrigt atvinnulíf sem blómstrar. Guðbjartur er mannlegur, hann hefur viðurkennt að hafa gert mistök og beðist afsökunar.

Ójöfnuður var mikill fyrir hrun, það má ekki koma fyrir aftur. Ég vil að mín kynslóð geti litið bjartsýn og jákvæð til framtíðar, því kýs ég Guðbjart Hannesson til formanns Samfylkingarinnar til að berjast fyrir réttlæti og jöfnuði á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×