"Verðvernd“ blekkir neytendur Baldur Björnsson skrifar 16. janúar 2013 06:00 Helstu keppinautar Múrbúðarinnar á byggingavörumarkaði auglýsa svokallaða verðvernd. Fullyrt er að verðvernd tryggi viðskiptavinum lægsta verðið. Hvernig geta margar verslanir allar verið með lægsta verðið á sömu vörunum? Auðvitað geta þær það ekki, nema hreinlega gefa vörurnar. Verðvernd er ekkert annað en blekking, sett fram til að láta viðskiptavini halda að lægra verð finnist ekki annars staðar. Blekking verðverndarinnar felst í því að viðkomandi verslun lofar alls ekki að vera með lægsta verðið, þó svo að hún láti í það skína. Þess í stað lofar hún að ef viðskiptavinur finnur lægra verð annars staðar, þá fái hann mismuninn endurgreiddan. Sem sagt, það er undir viðskiptavininum komið að finna lægsta verðið. Verslun sem býður verðvernd getur því í raun alltaf verið með hæsta verðið þó að hún gefi annað í skyn.Bauhaus stoppað af Smám saman er Neytendastofa að átta sig á því að óhóflegar fullyrðingar um verðvernd eru villandi fyrir neytendur. Nýlega bannaði Neytendastofa Bauhaus að auglýsa lægsta verðið á grundvelli verðverndar. Neytendastofa bannaði Bauhaus einnig að setja ósanngjörn skilyrði fyrir viðskiptavini ef þeir vildu nýta sér verðverndina. Nú er það á ábyrgð starfsmanna Bauhaus að sannreyna hvort verð er lægra hjá keppinautum verslunarinnar. Að sjálfsögðu gildir það sama um aðrar verslanir sem auglýsa verðvernd. Um þessar mundir auglýsir Bauhaus bestu verðverndina á markaðnum. Þessu svipar til þess að auglýsa sig sem bestasta fyrirtæki landsins.Sneypuför neytandans Mesta ruglið með verðverndina felst í því að neytandinn þarf að leggja í mikla vinnu til að fá lægsta verðið. Ef hann finnur vöru á lægra verði annars staðar þarf hann að fara í upprunalegu verslunina til að krefjast endurgreiðslu á mismuninum. Viðkomandi verslun getur einhliða hafnað greiðslu á grundvelli þess að varan sé ekki sams konar eða sambærileg, að hún hafi verið á tilboði, að hún sé aðeins til í takmörkuðum mæli o.s.frv. Fyrirhöfnin getur því snúist upp í sneypuför.Betri aðferð Það er til önnur og miklu betri aðferð til að tryggja sér lægsta verðið. Hún er sú að trúa aldrei fullyrðingum um lágt verð eða verðvernd, heldur gera verðsamanburð ÁÐUR en ráðist er í að kaupa vöruna. Þá fæst hún á lægsta verðinu í fyrstu atrennu og engin þörf á því að eltast við endurgreiðslu á grundvelli loforða um „verðvernd“ með tilheyrandi fyrirhöfn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson Skoðun Sleggjudómar ráðherra Sveinn Óskar Sigurðsson Skoðun Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson Skoðun Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Um þöggun Hörður Torfason Skoðun Skoðun Skoðun „Þúsund þorskar á færibandinu...“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Sjá hvað? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Komstu ekki með afmælisgjöf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Sleggjudómar ráðherra Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber skrifar Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun