Skoðun

Loðdýrarækt bönnuð í Hollandi

Íris Ólafsdóttir skrifar
Þann 18. desember sl. samþykkti hollenska þingið með miklum meirihluta, 46 gegn 29 atkvæðum, að banna loðdýrarækt alfarið þar í landi af siðferðislegum ástæðum. Þar með er Holland komið í hóp framsækinna landa sem viðurkenna grimmd loðdýraræktarinnar en þessi lönd eru Bretland, Austurríki, Króatía og nú Holland. Að auki er reglugerð vegna loðdýraræktunar í Sviss það ströng að greinin hefur lagst af þar.

Loðdýrabændur í Hollandi fá frest til 1. janúar 2024 til að laga sig að nýju lögunum. Árið 2009 var reynt að ná þessu banni í gegn fyrir árið 2018 og var það samþykkt í neðri deild þingsins, en andstæðingar lýstu yfir áhyggjum vegna hugsanlegs fjárhagstjóns minkabænda. Í nýju löggjöfinni var dagsetningunni breytt og bændum voru boðnar bætur.

Hollensk minnkaframleiðsla hefur farið ört vaxandi síðasta áratuginn, þar með valdið því að milljónir minka eyddu stuttu, streitufullu æviskeiði sínu í þjáningu í pínulitlum búrum–einungis fyrir hégóma mannskepnunnar.

Sem betur fer sendir Holland nú út þau skilaboð til iðnaðarins og almennings að loðfeldur sé ekki „kúl“ og það að valda dýrum svo mikilli þjáningu fyrir ónauðsynlega vöru sé ekki réttlætanlegt. Tomas Pietsch, sérfræðingur í villtum dýrum komst svo vel að orði: „Ef Hollendingar geta bannað minkaræktunariðnaðinn með 6 milljónir minka á ári og 159 minkabændur, af siðferðislegum ástæðum, er engin ástæða fyrir önnur lönd að viðhalda þessari grimmd gegn dýrum.“

Horfumst í augu við grimmd loðdýraræktarinnar, fylgjum framsæknari löndum eftir og setjum spurningarmerki við aukna áherslu Íslendinga á loðdýrarækt.

Heimildir: http://infurmation.com/downloads/press/thenetherlandsbanminkfarming.pdf




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×