Ný(r) og betri! Guðrún Högnadóttir skrifar 9. janúar 2013 16:00 Heimsendir skall á okkur á vetrarsólstöðum án tilheyrandi jarðskjálfta, ofsaflóða og þrumuveðurs. Eða hvað? Majarnir boðuðu ekki harmleik – þvert á móti markaði endalok dagatals þeirra nýtt vitundarstig. Upplýstrar tilveru og nýrrar þekkingar og sáttar. Nýs upphafs. Upphafs sem hefst með þér á þessum áramótum í gregorískum skilningi. Hvaða nýi veruleiki blasir við þér? Margir hafa haldið því fram að í raun breytumst við lítið. Lifum og hrærumst í sömu fjölskylduboðunum, í sömu flækjunum, með sömu hugsanir ævilangt. Vissir þú að líkaminn endurnýjar flestar frumur sínar á 7-10 ára fresti? Nýjar rannsóknir sýna að meira að segja hluti heilafrumna fjölga sér. Ný(r) þú – alveg án fyrirhafnar! Er ekki tími kominn til að taka stjórn á þinni umbreytingu og gera góða hluti enn betur? Áramót eru klassískur tími endurskoðunar og nýrrar markmiðasetningar. Hvernig væri að taka nýja sýn á þitt líf í þessari viku og leita þinna svara við nokkrum öflugum spurningum? Segðu nei og meintu það!Við erum ofsótt af áreitum í dagsins önn og reynum í okkar "dugnaði" að bregðast við þeim öllum. Svara tölvupóstum í tugatali fyrir hádegi, sækja fundina tuttugu og sjö fyrir vikulok, taka samtölin, skila skýrslunum, sækja börnin, sprikla, halda dauðataki í snjallsímann sem gæti hringt, hrist eða hríslað inn nýjum fyrirmælum sem við að sjálfsögðu fylgjum. Rannsóknir sýna að árátta okkar í að grípa í símann til að taka stöðuna er sterkari fíkn en fíknin í sígarettu. Hvert erum við eiginlega komin á tölvuöld? Hefur tæknin endanlega tekið völdin? Taktu þér tak í góðu tómi og tengdu þig við það sem er þér í raun mikilvægt. Og sinntu þeim málum af ákafa. Láttu hin áreitin eiga sig. Leiktu hlutverkið til fullsLífið er margbreytilegt. Við lifum og hrærumst í mörgum hlutverkum dagsdaglega. Við erum foreldrar, starfsmenn, íþróttaþjálfarar, stjórnarmenn, dætur, vinir, nemar. Rannsóknir sýna að heilinn nær betur tökum á veruleikanum ef við hugsum skipulega í hólfum, líkt og leikari á sviði. Eitt hlutverk af fullri sannfæringu í einu. Taktu þér stund og skilgreindu þín hlutverk. Takmarkaðu fjölda þeirra við fimm til sjö. Hafðu síðan kjarkinn til að stíga að fullu inn í það hlutverk í hvert sinn sem lífið kallar á það. Hættu að vera öllum allt. Horfðu til stjarnannaSkoraðu á þig í ár – ekki sætta þig við meðalmennsku. Hverjar eru þínar fyrirmyndir? Hvernig lítur fullkominn heimur út? Ætlar þú að feta í fótspor forgöngumanna eða ætlar þú að teygja þig til stjarnanna og ná þannig til tunglsins? Hafðu kjarkinn til að standa á öxlum þeirra bestu. Settu markið hátt í ár. Í hverju hlutverki. Vertu til fyrirmyndar. Og uppskerðu sem aldrei fyrr! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar