Skoðun

Ábyrg spilamennska með Betsson

Ulrik Bengtsson skrifar
Betsson er fyrirtæki sem býður viðskiptavinum um allan heim spilaþjónustu á netinu frá höfuðstöðvum sínum á Möltu. Við teljum rétt að segja okkar skoðun á nýlegu frumvarpi innanríkisráðherra Íslands um breytingar á happdrættislögum landsins en fjalla líka um algengan misskilning um spilamennsku á netinu og útskýra fyrir hvað Betsson stendur sem fyrirtæki.

Ef tilgangur frumvarps innanríkisráðherra á að vera vernd fyrir þá sem spila á netinu þá mun það óhjákvæmilega mistakast eins og hefur sýnt sig annars staðar. Það er líka ástæðan fyrir því að Danmörk, Bretland, Eistland, Ítalía, Frakkland, Belgía, Þýskaland, Svíþjóð, Holland og Spánn hafa breytt (eða munu breyta) fyrri einkaréttarstöðu og hafa innleitt leyfiskerfi án mismununar undir innlendri stjórn.

Slík kerfi eru ekki aðeins í flestum tilvikum í samræmi við evrópsk lög heldur tryggja þau að sem flestir spili á netsvæðum sem heyra undir lög og eftirlit hvers lands, og hafi að auki val um hvert þeir kjósa að beina viðskiptum sínum.

Vernd notenda

Megintilgangur þessara lagabreytinga í Evrópu er vernd notenda sem fer að fullu saman við gildi og skuldbindingar Betsson. Árið 2009 fékk Betsson æðstu viðurkenningu leikjageirans fyrir félagslega ábyrga starfsemi. Við leitumst stöðugt við að vera í forystu á því sviði.

Betsson AB, hið sænska móðurfélag Betsson Möltu, býr yfir 50 ára sögu og er skráð í Norrænu kauphöllinni OMX í Stokkhólmi. Betsson Malta er undir strangri stjórn Lottó og spilayfirvalda Möltu (LGA) sem felur til dæmis í sér að sjóðir viðskiptavina eru aðskildir. Við erum einnig með staðbundin leyfi í Danmörku, Eistlandi og Ítalíu með álíka eða jafnvel enn strangari reglum. Enda er öryggi viðskiptavina Betsson mjög mikið.

Við erum í stöðugum viðræðum við stjórnvöld víða um hvernig hægt er að útfæra reglusetningu á netspilamennsku á ábyrgan og árangursríkan hátt. Við vonumst til að einhvern daginn gefist tækifæri á slíku samráði við íslensk stjórnvöld til hagsbóta fyrir íslenska notendur og skattgreiðendur.




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×