Stássstofa okkar Reykvíkinga Hildur Símonardóttir skrifar 25. júlí 2013 07:00 Á umliðnum árum og áratugum hefur versluninni farið hnignandi í miðborginni og í staðinn sjáum við spretta upp sífellt fleiri öldurhús með öllum þeim sóðaskap og öllu því ónæði sem næturlífi fylgir. Á sama tíma hefur miðborg Reykjavíkur orðið að mest sótta áfangastað ferðamanna á landinu. Hundruð þúsunda útlendinga sækja miðborgina heim á ári hverju og má hún heita andlit borgarinnar út á við. En líkt og önnur andlit þarf hún að vera vel hirt. Á því er mikill misbrestur. Skrúðgarðar miðborgarinnar eru borginni lítt til sóma, beðin illa hirt, limgerði óklippt og glas illa slegið. Að sama skapi vantar víða ruslastampa og því fleygir fólk hvers kyns umbúðum á víðavangi. Að mínu mati væri rétt að virkja ákvæði lögreglusamþykktar Reykjavíkur og sekta þá sem slíkt gera. Reykingamenn fleygja sígarettustubbum á víðavangi, enda vantar sárlega ruslastanda og „stubbastanda“. Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir þann ósið að gestir vínveitingahúsa fari út af stöðum með drykki og kominn er tími til að tekið verði hart á ölvun á almannafæri. Annað vandamál hefur verið að ágerast, en ekki er langt síðan yfirvöld í borginni lokuðu eina almenningssalerninu í miðborginni, hinu víðfræga Núlli í Bankastræti. En til staðar eru almenningsalerni á þremur öðrum stöðum í miðborginni, á Vitatorgi, í bílastæðahúsinu á Stjörnutorgi og á Hlemmi. Öll þessi salerni eru nú harðlæst.Snyrtilegri ásýnd Erlendir ferðamenn kvarta sáran undan því að engin salerni sé að finna á þessum aðalferðamannastað landsins, sér í lagi á morgnana áður en veitinga- og kaffihúsin opna, en erlendir ferðamenn spóka sig gjarnan um í miðbænum snemma á morgnana. Borgin ætti að sjá sóma sinn í að opna á nýjan leik þessi fjögur almenningssalerni og kynna þau vel. Við fasteignaeigendur í miðborginni erum látnir greiða einhver hæstu fasteignagjöld á landinu og það þrátt fyrir að verðmæti verslunarhúsnæðis á svæðinu fari hríðlækkandi. Nær væri að lækka þessi gjöld til að laða að fjölbreytta starfsemi og innheimta þess í stað þrifnaðargjöld af veitingahúsum í miðborginni, en mikill sóðaskapur er oft í námunda við veitingastaði, æla, hland og jafnvel mannasaur, og kannski ekki nema von þar sem hvergi má finna almenningssalerni á svæðinu. Slæleg löggæsla í miðborginni hefur einnig orðið til að auka á sóðaskapinn, til að mynda hefur veggjakrot enn á ný ágerst og kostar okkur fasteignaeigendur stórfé árlega. Ég átti frumkvæði að átaki í þeim málum fyrir nokkrum árum sem skilaði svo góðum árangri að veitt voru sérstök verðlaun fyrir. Lítil löggæsla hefur einnig skapað stóraukna hættu fyrir almenning, en fólk á það á hættu að verða fyrir ránum og barsmíðum einhverra þrjóta og það jafnvel um hábjartan dag. Ef lögreglu væru veittar nægilegar fjárveitingar mætti koma þessum mönnum bak við lás og slá. Það er orðið löngu tímabært að miðborg Reykjavíkur fái snyrtilegri ásýnd. Við viljum að heimili okkar séu vel þrifin þegar gesti ber að garði og miðborgin er stássstofa okkar Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason Skoðun Skoðun Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvernig verjum við sjálfstæði Íslands til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Staðreyndir og fræðsla um flugmannsstarfið Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun 82 ár frá stofnun lýðveldisins: Gleymum ekki sögu okkar Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Kos staðfesti ekki tilvist samkomulags Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Við erum orðin Afríka: Hvernig íslenska elítan rændi þjóðinni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Skýrar línur og strangari löggjöf um vindorku Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Alvarleg og viðvarandi hernaðarógn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun 30% lækkun skiptir sveitir landsins máli Axel Sæland skrifar Skoðun Er ný fjármálaáætlun á áætlun? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Á að kenna íslensku við Háskóla Íslands? Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Enginn á að ýta Íslandi inn um bakdyrnar Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar
Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar
Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar