Tíu vændiskaupendur ákærðir - Alls 86 meintir kaupendur Stígur Helgason skrifar 17. október 2013 07:00 Lögreglan kynnti afrakstur rannsóknar sinnar á blaðamannafundi í apríl. Fréttablaðið/GVA
Tíu mál gegn kaupendum vændis eru á dagskrá Héraðsdóms Reykjaness á fimmtudaginn í næstu viku. Nöfn sakborninganna eru ekki birt á dagskránni, þar kemur aðeins fram að hvert kynferðisbrotið á fætur öðru á hendur einstaklingum sem allir eru kallaðir „A“ verði þingfest. Fréttablaðið hefur upplýsingar um að málin snúist um kaup á vændi og séu hluti af málum sem bárust Ríkissaksóknara frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Alls voru mál 86 ætlaðra kaupenda send ákæruvaldinu og þau snerust meira og minna um kaup á vændi af tveimur konum. Ekki fást upplýsingar um það hvort gefnar hafi verið út ákærur í fleiri málum en þessum tíu sem komin eru á dagskrá Héraðsdóms Reykjaness. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa einhver mál verið felld niður hjá Ríkissaksóknara en þó er ljóst að ákært verður í mun fleiri málum en þessum tíu. Í apríl kynnti sérstakt teymi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum afrakstur margra mánaða rannsóknar á vændi og mansali á Íslandi. Við rannsóknina var sjónum einkum beint að vændi sem auglýst var á netinu og í smáauglýsingum. Fram kom í skýrslu greiningardeildar Ríkislögreglustjóra að lögregla hefði ekki fundið sannanir fyrir því að mansal þrifist í borginni.
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Fleiri fréttir Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sjá meira