ESB bannar paraben í snyrtivörum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 17. október 2013 08:00 Þeir sem ekki vilja hafa varasöm efni í snyrtuvörunum sínum þurfa að skoða vel innihaldslýsingar við kaup á þeim.
Evrópusambandið, ESB, hyggst banna fimm stærstu sameindir parabenefna, þ.e. rotvarnarefna, í snyrtivörum. Framleiðendur hafa ekki afhent Evrópusambandinu gögn sem sýna fram á að þessar tegundir séu öruggar til notkunar og þar sem þær geta mögulega raskað hormónastarfsemi verða þær bannaðar. Evrópsk reglugerð um snyrtivörur tók gildi hér á landi í júlí síðastliðnum. Banninu mun þess vegna verða fylgt eftir hér á landi þegar reglugerðin verður uppfærð. Í fréttatilkynningu til danskra fjölmiðla fagnar umhverfisráðherra Danmerkur, Ida Auken, banninu. Hún segir það góð tíðindi að þessi efni verði bönnuð þannig að ekki verði lengur hægt að nota þau við framleiðslu snyrtivara eins og krems, sjampós og farða. Umhverfisráðherrann lýsir yfir sérstakri ánægju með að bannið eigi að ná til allra tegunda snyrtivara þannig að það verndi allan almenning og þá ekki síst börn og barnshafandi konur.Bergþóra SkúladóttirBergþóra Skúladóttir, teymisstjóri efnateymis Umhverfisstofnunar, segir Dani hafa beitt sér mjög í þessum málum. Þeir hafi sjálfir sett bann við ákveðnum parabenum fyrir tveimur árum. „Þessi ákvörðun ESB er góðar fréttir. Þegar bannið tekur gildi hjá ESB mun það gilda á Íslandi líka.“ Á vef Umhverfisstofnunar segir að paraben séu flokkur efna sem séu m.a. notuð sem rotvarnarefni í snyrti- og hreinsivörum fyrir bæði börn og fullorðna. Um er að ræða að minnsta kosti sex mismunandi sameindir sem eru misstórar og bera nöfnin metýl-, etýl-, própýl-, bútýl-, ísóprópýl- og ísóbútýlparaben. Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að paraben raska hormónastarfsemi, og að áhrifin aukast með stærð sameindarinnar. Í dag er leyfilegur heildarstyrkur parabena í snyrtivörum háður takmörkunum. Svansvottaðar snyrtivörur innihalda ekki paraben. Árið 2011 voru própýl-, bútýl-, ísóprópýl- og ísóbútýlparaben og sölt þeirra bönnuð í Danmörku í vörum fyrir börn, þriggja ára og yngri. Evrópusambandið hefur nú ákveðið að banna stærstu sameindir parabena, það er ísópropýlparaben, ísóbútýlparaben, penýlparaben, benzýlparaben og pentýlparaben, í snyrtivörum. Fjórða hvert tilfelli snyrtivöruofnæmis er af völdum svitalyktareyðis. Þetta eru niðurstöður rannsókna vísindamanna við Gentofte Hospital í Danmörku. Á vef danska ríkisútvarpsins er haft eftir prófessornum Jeanne Duus Johansen að efni í svitalyktareyði komist auðveldlega inn í líkamann, sérstaklega ef sár myndast við rakstur. Konur eiga frekar á hættu að fá ofnæmi af svitalyktareyði þar sem það eru einkum þær sem raka sig undir höndunum. Einkennin geta verði útbrot, roði, bólga, kláði og lítil sár.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira