Upphlaup formanns Gerplu Ármann Kr. Ólafsson skrifar 30. apríl 2013 07:00 Jón Finnbogason, formaður Gerplu í Kópavogi, fór mikinn í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann með rakalausum málflutningi heldur því fram að vísa þurfi börnum frá íþróttaiðkun vegna óbilgirni Kópavogsbæjar. Ég skil ekki hvað Jóni gengur til en vil byrja á því að árétta að það er rangt hjá honum að þúsund börn séu á biðlista hjá Gerplu. Samkvæmt þeirra eigin tölum voru 528 börn á biðlista sl. haust. Þar af voru 206 börn, frá sex ára aldri, úr Kópavogi. Á sama tíma voru 300 iðkendur Gerplu búsettir utan Kópavogs. Þetta þýðir með öðrum orðum að „vandi“ Gerplu felst í því að um þriðjungur félagsmanna er ekki Kópavogsbúar. Það getur ekki hvílt nein skylda á skattgreiðendum Kópavogs að greiða fyrir nýtt húsnæði þegar félagið er þannig samsett. Eða eiga bæjarbúar að borga fyrir íþróttaiðkun þeirra sem búa ekki í bænum á sama tíma og þeirra eigin börn komast ekki að?Íþróttahúsin vel nýtt Einnig vil ég nefna, og vísa í nýlega samantekt því til staðfestingar, að íþróttahúsin í Kópavogi eru að öllu jöfnu vel nýtt. Með því að halda öðru fram, eins og Jón gerir, er verið að gera lítið úr starfi HK og Breiðabliks sem eru í hópi öflugustu íþróttafélaga landsins. Gerpla hefur góða aðstöðu og til umráða stærsta íþróttahús landsins, skv. samningi við bæinn. Ekki stendur til að reisa aðra fimleikahöll enda engin þörf á því. Erindi Gerplu frá sl. hausti var svarað með bréfi dagsettu 1. nóvember 2012, ólíkt því sem Jón heldur fram, þar sem afstaða bæjarins var rakin. Þar var áréttað að Gerplu var boðin aðstaða í íþróttahúsum Kársnesskóla og Lindaskóla sem ekki var þegin. Það er mjög miður, svo vægt sé til orða tekið, að Jón kjósi að ráðast til atlögu að Kópavogsbæ sem hefur búið fimleikafólki sínu bestu mögulegu aðstöðu á landinu öllu. Um það vitnar glæsilegur árangur íþróttafólksins okkar nú síðast á Íslandsmóti í hópfimleikum um liðna helgi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Jón Finnbogason, formaður Gerplu í Kópavogi, fór mikinn í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann með rakalausum málflutningi heldur því fram að vísa þurfi börnum frá íþróttaiðkun vegna óbilgirni Kópavogsbæjar. Ég skil ekki hvað Jóni gengur til en vil byrja á því að árétta að það er rangt hjá honum að þúsund börn séu á biðlista hjá Gerplu. Samkvæmt þeirra eigin tölum voru 528 börn á biðlista sl. haust. Þar af voru 206 börn, frá sex ára aldri, úr Kópavogi. Á sama tíma voru 300 iðkendur Gerplu búsettir utan Kópavogs. Þetta þýðir með öðrum orðum að „vandi“ Gerplu felst í því að um þriðjungur félagsmanna er ekki Kópavogsbúar. Það getur ekki hvílt nein skylda á skattgreiðendum Kópavogs að greiða fyrir nýtt húsnæði þegar félagið er þannig samsett. Eða eiga bæjarbúar að borga fyrir íþróttaiðkun þeirra sem búa ekki í bænum á sama tíma og þeirra eigin börn komast ekki að?Íþróttahúsin vel nýtt Einnig vil ég nefna, og vísa í nýlega samantekt því til staðfestingar, að íþróttahúsin í Kópavogi eru að öllu jöfnu vel nýtt. Með því að halda öðru fram, eins og Jón gerir, er verið að gera lítið úr starfi HK og Breiðabliks sem eru í hópi öflugustu íþróttafélaga landsins. Gerpla hefur góða aðstöðu og til umráða stærsta íþróttahús landsins, skv. samningi við bæinn. Ekki stendur til að reisa aðra fimleikahöll enda engin þörf á því. Erindi Gerplu frá sl. hausti var svarað með bréfi dagsettu 1. nóvember 2012, ólíkt því sem Jón heldur fram, þar sem afstaða bæjarins var rakin. Þar var áréttað að Gerplu var boðin aðstaða í íþróttahúsum Kársnesskóla og Lindaskóla sem ekki var þegin. Það er mjög miður, svo vægt sé til orða tekið, að Jón kjósi að ráðast til atlögu að Kópavogsbæ sem hefur búið fimleikafólki sínu bestu mögulegu aðstöðu á landinu öllu. Um það vitnar glæsilegur árangur íþróttafólksins okkar nú síðast á Íslandsmóti í hópfimleikum um liðna helgi.
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun