Skoðun

Færum vináttu Kína og Íslands í hærri hæðir

Ma Jisheng skrifar
Dagana 26. – 28. október nk. mun hið fagra Ísland bjóða velkominn í opinbera heimsókn varaforsætisráðherra ríkisráðs Kína, Ma Kai. Hann kemur hingað til lands í boði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra Íslands. Þessi heimsókn er fyrsta heimsókn eins af nýju leiðtogum Kína til Íslands eftir að leiðtogaskipti áttu sér stað innan miðstjórnarinnar í Peking og sömuleiðis fyrsta heimsókn eins af leiðtogum Kína til Íslands eftir stjórnarskipti á Íslandi.

Jafnframt hefur jafn valdamikill leiðtogi Kína ekki heimsótt Ísland það sem af er þessu ári. Því er um mjög merkilegan viðburð að ræða. Ma Kai varaforsætisráðherra er vel menntaður á sviði stjórnmála og efnahagsmála. Hann hefur mikla reynslu af grasrótarstarfi og er jafnframt mjög reynslumikill þegar kemur að stjórn efnahagsmála á vegum miðstjórnarinnar.

Í langan tíma gegndi hann starfi skrifstofustjóra ríkisráðsins og sýndi í störfum sínum þar einstaka leiðtogahæfileika í að miðla málum og leiða saman ólík sjónarmið. Í dag hefur hann að mestu málefni iðnaðar, samgangna og fjármála í Kína á sinni könnu og gegnir því gríðarlega mikilvægu hlutverki í framtíðarþróun efnahagsmála og samfélags í Kína.

Aukið samstarf

Íslensk stjórnvöld telja heimsókn Ma Kai varaforsætisráðherra mjög mikilvæga og hafa undirbúið hana af mikilli kostgæfni. Bæði forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, munu hitta Ma Kai meðan á heimsókn hans stendur og eiga viðræður við hann. Samræður leiðtoga landanna munu snúast um hvaða leiðir ný stjórnvöld í báðum löndum hafi til að efla áfram mjög svo vinsamleg samskipti ríkjanna og koma þeim í ennþá hærri hæðir.

Með sanni má segja að heimsókn Ma Kai varaforsætisráðherra að þessu sinni sé til að auka samræður á milli landanna með það að markmiði að auka skilning og vináttu alþýðu beggja ríkja sem leiða mun af sér aukið samstarf. Í Kína segir gamalt orðatiltæki: Eftir því sem vinir færast nær eykst vináttan. Heimsókn Ma Kai varaforsætisráðherra mun auka tengsl á æðstu stöðum beggja ríkja og efla samskipti á meðal almennings til aukins skilnings.

Þannig styrkist þráðurinn er tengir þjóðirnar saman og gefur af sér aukið samstarf tveggja góðra vina til hagsbóta báðum aðilum og friði í heiminum.

Það er einlæg ósk mín að heimsókn Ma Kai varaforsætisráðherra til Íslands megi takast vel í alla staði og ég er sannfærður um að gestrisni Íslendinga og fögur náttúra landsins muni skilja eftir ljúfar minningar í huga hans.




Skoðun

Sjá meira


×