Matur

Helgarmaturinn - Indversk kjúklingasúpa

Berglind Hreiðarsdóttir, mannauðsstjóri World Class.
Berglind Hreiðarsdóttir, mannauðsstjóri World Class.

Berglind Hreiðarsdóttir, mannauðsstjóri World Class, situr ekki auðum höndum í eldhúsinu en það vita allir sem til hennar þekkja. Hún deilir hér uppskrift að dásamlegri vetrarsúpu.

Indversk kjúklingasúpa

Fyrir sex 

Innihald:

5-6 kjúklingabringur

2-3 stk. sætar kartöflur

2 stk. rauðar paprikur (skornar í ræmur)

1 stk. púrrulaukur (skorinn í ræmur)

3 stk. hvítlauksgeirar (saxaðir)

1-3 msk. karrí

3-4 msk. olía

2 flöskur Heinz-chilisósa

400 g rjómaostur

5 dl matreiðslurjómi

1 l vatn (jafnvel meira)

Um 1 msk. rósmarín

Um 2 msk. Eftirlæti hafmeyjunnar (Pottagaldrar)

Um 1-2 teningar kjúklingakraftur

Aðferð:

Setjið vatn, chilisósurnar, rjómaost, rjóma, kjúklingakraft og krydd (rósmarín og Eftirlæti hafmeyjunnar) í pott og látið malla. Best er að rjómaosturinn bráðni alveg og svo má þynna súpuna með vatni ef hún þykir of þykk.

Skerið þar á eftir sætu kartöflurnar í hæfilega stóra teninga og setjið út í súpuna, mallið áfram.

Því næst eru paprika, púrrulaukur og hvítlaukur steikt upp úr karríi og olíu og bætt í pottinn. Þetta allt látið malla þar til kartöfluteningarnir verða mjúkir.

Á meðan eru kjúklingabringurnar skornar í bita og steiktar á pönnu, kryddaðar með salti og pipar og bætt við, látið malla áfram í um 10 mínútur og þá er súpan tilbúin.

Frábært er að bera þessa súpu fram með naan-brauði eða öðru slíku. Eins og með margar súpur er þessi súpa alveg jafn góð, ef ekki betri, næsta dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×