Horfum til austurs Ragnar Guðmundsson skrifar 21. september 2013 06:00 Einn kaldan en fagran morgun stóð ég við vaskinn og rakaði þykk hárin úr andliti mér. Mér varð litið í spegilinn og samstundis flögraði sú hugsun í huga mér hvað mannskepnan sé grimm. Einelti, heimsstyrjaldir og allt þar á milli eru birtingarmyndir þessa dýrs sem býr í brjósti okkar, sem þráir ekkert heitar en að brjótast fram með heift og ofbeldi. Tilgangsleysi lýsir best stríðinu í Sýrlandi, valdfýsn og kúgunartilburðir. Vesturlönd geta að sjálfsögðu ekki staðið hjá en stefnan er röng. Það er ekki nóg að senda þessar eldfimu bréfdúfur, flugskeytin, á Assad einvörðungu. Að sjálfsögðu þarf að sprengja báðar hliðar til jafns. Myndbandsupptaka af uppreisnarmönnum sem leggja sér mannshjarta til munns hefur vakið mikla reiði meðal almennings en Obama og félagar sjá ekkert athugavert við það. Þessum mönnum þurfa þeir að koma til varnar. Rússneski steinþursinn Vladimír Pútín hefur í þessum deilum risið eins og fönix úr ösku brenndra hermanna og stendur í vegi fyrir loftárásum Bandaríkjamanna við litla hrifningu Bandaríkjastjórnar. Þessi friðarhugsun hr. Pútíns fær mann til að hugsa hvort það væri ekki betra ef Sigmundur Davíð byði honum í heimsókn hingað á land, í stað Obama, þar sem þeir gætu skipst á skópörum og rætt um frið og mannréttindi. Það er lítið sem truflar friðinn hér á landi ísa annað en vindurinn sem klórar í glerið og stöku köttur sem breimar. Þegar íslenskt barn missir bolta sinn út á götu er helsti óvinurinn brjálaðir ökumenn borgarinnar. Í Sýrlandi er helsta ógnin hins vegar fjarstýrð morðtól Bandaríkjastjórnar. Í Utah sitja þeir með stýripinna og franskar. Slíkir menn munu aldrei skilja þá mannlegu eymd sem býr þarna á bak við. Fyrir þeim gætu þeir allt eins spilað eitthvert tölvuspil. Kæru Íslendingar, hendur okkar eru blóði drifnar. Við þurfum að slíta stjórnmálasambandi við Bandaríkjastjórn strax í dag! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Einn kaldan en fagran morgun stóð ég við vaskinn og rakaði þykk hárin úr andliti mér. Mér varð litið í spegilinn og samstundis flögraði sú hugsun í huga mér hvað mannskepnan sé grimm. Einelti, heimsstyrjaldir og allt þar á milli eru birtingarmyndir þessa dýrs sem býr í brjósti okkar, sem þráir ekkert heitar en að brjótast fram með heift og ofbeldi. Tilgangsleysi lýsir best stríðinu í Sýrlandi, valdfýsn og kúgunartilburðir. Vesturlönd geta að sjálfsögðu ekki staðið hjá en stefnan er röng. Það er ekki nóg að senda þessar eldfimu bréfdúfur, flugskeytin, á Assad einvörðungu. Að sjálfsögðu þarf að sprengja báðar hliðar til jafns. Myndbandsupptaka af uppreisnarmönnum sem leggja sér mannshjarta til munns hefur vakið mikla reiði meðal almennings en Obama og félagar sjá ekkert athugavert við það. Þessum mönnum þurfa þeir að koma til varnar. Rússneski steinþursinn Vladimír Pútín hefur í þessum deilum risið eins og fönix úr ösku brenndra hermanna og stendur í vegi fyrir loftárásum Bandaríkjamanna við litla hrifningu Bandaríkjastjórnar. Þessi friðarhugsun hr. Pútíns fær mann til að hugsa hvort það væri ekki betra ef Sigmundur Davíð byði honum í heimsókn hingað á land, í stað Obama, þar sem þeir gætu skipst á skópörum og rætt um frið og mannréttindi. Það er lítið sem truflar friðinn hér á landi ísa annað en vindurinn sem klórar í glerið og stöku köttur sem breimar. Þegar íslenskt barn missir bolta sinn út á götu er helsti óvinurinn brjálaðir ökumenn borgarinnar. Í Sýrlandi er helsta ógnin hins vegar fjarstýrð morðtól Bandaríkjastjórnar. Í Utah sitja þeir með stýripinna og franskar. Slíkir menn munu aldrei skilja þá mannlegu eymd sem býr þarna á bak við. Fyrir þeim gætu þeir allt eins spilað eitthvert tölvuspil. Kæru Íslendingar, hendur okkar eru blóði drifnar. Við þurfum að slíta stjórnmálasambandi við Bandaríkjastjórn strax í dag!
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar