Mjúklegur akstur er málið Steindór Steinþórsson skrifar 26. nóvember 2013 06:00 Nú standa yfir öryggisdagar Strætó bs. og VÍS. Öryggisdagarnir ná yfir sex vikur og eru haldnir til að vekja vagnstjóra til umhugsunar hvað mikilvægt er að sýna öryggi í umferðinni. Það á ekki síst við um að aka mjúklega. Mikill kostnaður getur fylgt tjónum og slysum hvort sem er á eignum eða fólki, að ekki sé minnst á þá vanlíðan sem slys geta valdið þeim sem í þeim lenda. Kostnaður vegna slysa á fólki getur verið umtalsverður og nægir oft að vagn hemli snögglega af einhverjum orsökum og farþegi sem ekki er því viðbúinn getur slasast illa. Starf strætóbílstjóra er mjög krefjandi og er að mörgu að hyggja hvort sem það er utan vagns, það er að segja í umferðinni, eða inni í vagninum sjálfum. Lykilatriði í því að fækka tjónum er að aka mjúklega. Það dregur úr hættunni á því að slys verði á fólki, auk þess sem það gerir strætóferðina mun ánægjulegri. Tjónum á ökutækjum þar sem strætisvagn á í hlut hefur fækkað verulega síðustu árin. Sem dæmi má nefna að allt árið 2006 voru skráð um 360 slík tjón, sem er um eitt tjón á dag. Árið 2010 voru skráð 157 tjón, 2011 urðu þau 82 og í fyrra voru einungis skráð 72 tjón. Það að ná slysum úr 360 í 72 á örfáum árum er algjör viðsnúningur og í raun hugarfarsbreyting sem við sem störfum hjá Strætó erum afar stolt af. Framangreindar tölur eru bæði hvort sem vagn er í rétti eða órétti. Af þessu má ráða að með því að vekja fólk til umhugsunar um kostnað tjóna og slysa og nauðsyn þess að aka með varúð og vera ætíð á „vaktinni“ gagnvart öðru samferðafólki í umferðinni virkar, og að sjálfsögðu setjum við öryggið framar öllu hvort sem er á öryggisdögum eða utan þeirra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Nú standa yfir öryggisdagar Strætó bs. og VÍS. Öryggisdagarnir ná yfir sex vikur og eru haldnir til að vekja vagnstjóra til umhugsunar hvað mikilvægt er að sýna öryggi í umferðinni. Það á ekki síst við um að aka mjúklega. Mikill kostnaður getur fylgt tjónum og slysum hvort sem er á eignum eða fólki, að ekki sé minnst á þá vanlíðan sem slys geta valdið þeim sem í þeim lenda. Kostnaður vegna slysa á fólki getur verið umtalsverður og nægir oft að vagn hemli snögglega af einhverjum orsökum og farþegi sem ekki er því viðbúinn getur slasast illa. Starf strætóbílstjóra er mjög krefjandi og er að mörgu að hyggja hvort sem það er utan vagns, það er að segja í umferðinni, eða inni í vagninum sjálfum. Lykilatriði í því að fækka tjónum er að aka mjúklega. Það dregur úr hættunni á því að slys verði á fólki, auk þess sem það gerir strætóferðina mun ánægjulegri. Tjónum á ökutækjum þar sem strætisvagn á í hlut hefur fækkað verulega síðustu árin. Sem dæmi má nefna að allt árið 2006 voru skráð um 360 slík tjón, sem er um eitt tjón á dag. Árið 2010 voru skráð 157 tjón, 2011 urðu þau 82 og í fyrra voru einungis skráð 72 tjón. Það að ná slysum úr 360 í 72 á örfáum árum er algjör viðsnúningur og í raun hugarfarsbreyting sem við sem störfum hjá Strætó erum afar stolt af. Framangreindar tölur eru bæði hvort sem vagn er í rétti eða órétti. Af þessu má ráða að með því að vekja fólk til umhugsunar um kostnað tjóna og slysa og nauðsyn þess að aka með varúð og vera ætíð á „vaktinni“ gagnvart öðru samferðafólki í umferðinni virkar, og að sjálfsögðu setjum við öryggið framar öllu hvort sem er á öryggisdögum eða utan þeirra.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar