Reykjavíkurleikarnir eru komnir til að vera 5. febrúar 2013 06:00 Reykjavíkurleikarnir, Reykjavík International Games, lýstu svo sannarlega upp janúarmánuð hér í höfuðborginni. Leikarnir, sem nú voru haldnir í sjötta sinn, gengu frábærlega og umgjörð leikanna var í alla staði til fyrirmyndar. Fjölmörg Íslandsmet voru slegin og góður árangur náðist í hverri keppnisgrein. Leikarnir eru alltaf að auka umfang sitt. Í ár voru keppendur um 2.500, þar af tæplega 400 erlendir keppendur frá 27 þjóðlöndum. Það er því óhætt að segja að leikarnir skipti miklu fyrir Reykjavíkurborg sem eftirsóknarverður ferðamannastaður, bæði á sumrin og veturna. Það er gaman að sjá hvernig fræðslu og skemmtun er blandað saman við mótshald Reykjavíkurleikanna. Dæmi um slíkt eru vel heppnaðar málstofur, sundlaugarpartý, glæsileg danskeppni í Laugardalshöll og hjólasprettur á Skólavörðustígnum. Á lokahátíðinni hélt síðan Páll Óskar uppi stuðinu með dansleik eftir verðlaunaafhendinguna. Í ár var keppt í tveimur fleiri keppnisgreinum en í fyrra, alls 18 greinum, og fjölbreytnin er mikil. Á mótum sem þessum gefst íþróttamönnum tækifæri til að ná alþjóðlega viðurkenndum árangri sem veitir aðgang að stórmótum eins og heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum. Í mörgum tilvikum voru Reykjavíkurleikarnir í ár liður í undirbúningi íslensks íþróttafólks þar sem stefnan er sett á Ólympíuleikana og Ólympíumót fatlaðra sem fram fara í Ríó 2016. Mannvirki til íþróttaiðkunar í Reykjavík eru til fyrirmyndar og það markar okkur vissa sérstöðu að geta boðið upp á íþróttaaðstöðu, gistirými og aðra þjónustu í göngufæri. Vel skipulagðir Reykjavíkurleikar, íþróttaaðstaðan og ekki síst góðir gestgjafar gera það að verkum að erlendir keppendur vilja koma aftur og hróður Íslands og Reykjavíkur sem gestgjafa stórra íþróttaviðburða eykst. Reykjavíkurleikarnir krefjast mikils undirbúnings og vil ég þakka Íþróttabandalagi Reykjavíkur og sérsamböndum Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ) fyrir frábæra vinnu og gott samstarf. Íþrótta- og tómstundarráð (ÍTR) og Reykjavíkurborg eru stolt að því styðja við og vera hluti af leikunum. Einnig vil ég þakka öðrum stuðningsaðilum leikanna fyrir sitt framlag. Það að ná árangri krefst hæfileika en umfram allt ástríðu og vinnusemi. Það getum við með sanni sagt um okkar frábæra íþróttafólk en einnig um þá sem að íþróttastarfinu standa. Íþróttirnar glæða svo sannarlega borgina lífi og krafti! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson Skoðun Lágpunktur umræðunnar Jón Pétur Zimsen Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun Almenningur og breiðu bök ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Sameining vinstrisins Hlynur Már V. Skoðun Ísland er á réttri leið Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland er á réttri leið Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Sameining vinstrisins Hlynur Már V. skrifar Skoðun Lágpunktur umræðunnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Almenningur og breiðu bök ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason skrifar Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir skrifar Skoðun Ekkert barn á Íslandi á að búa við fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hundrað doktorsgráður Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun EES: ekki slagorð — heldur réttindi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Að þjóna íþróttum Rögnvaldur Hreiðarsson skrifar Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir skrifar Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ísland, öryggi og almennur viðbúnaður Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Hugleiðing um jól, fæðingu Krists og inngilding á Íslandi Nicole Leigh Mosty skrifar Skoðun Betri en við höldum Hjálmar Gíslason skrifar Skoðun Draumurinn um ESB-samning er uppgjöf – Ekki fórna framtíðinni fyrir falsöryggi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Setjum við Ísland í fyrsta sæti? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Skattahækkanir í felum – árás á heimilin Lóa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Að fyrirgefa sjálfum sér Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hér starfa líka (alls konar) konur Selma Svavarsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar Skoðun 5 vaxtalækkanir á einu ári Arna Lára Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Reykjavíkurleikarnir, Reykjavík International Games, lýstu svo sannarlega upp janúarmánuð hér í höfuðborginni. Leikarnir, sem nú voru haldnir í sjötta sinn, gengu frábærlega og umgjörð leikanna var í alla staði til fyrirmyndar. Fjölmörg Íslandsmet voru slegin og góður árangur náðist í hverri keppnisgrein. Leikarnir eru alltaf að auka umfang sitt. Í ár voru keppendur um 2.500, þar af tæplega 400 erlendir keppendur frá 27 þjóðlöndum. Það er því óhætt að segja að leikarnir skipti miklu fyrir Reykjavíkurborg sem eftirsóknarverður ferðamannastaður, bæði á sumrin og veturna. Það er gaman að sjá hvernig fræðslu og skemmtun er blandað saman við mótshald Reykjavíkurleikanna. Dæmi um slíkt eru vel heppnaðar málstofur, sundlaugarpartý, glæsileg danskeppni í Laugardalshöll og hjólasprettur á Skólavörðustígnum. Á lokahátíðinni hélt síðan Páll Óskar uppi stuðinu með dansleik eftir verðlaunaafhendinguna. Í ár var keppt í tveimur fleiri keppnisgreinum en í fyrra, alls 18 greinum, og fjölbreytnin er mikil. Á mótum sem þessum gefst íþróttamönnum tækifæri til að ná alþjóðlega viðurkenndum árangri sem veitir aðgang að stórmótum eins og heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum. Í mörgum tilvikum voru Reykjavíkurleikarnir í ár liður í undirbúningi íslensks íþróttafólks þar sem stefnan er sett á Ólympíuleikana og Ólympíumót fatlaðra sem fram fara í Ríó 2016. Mannvirki til íþróttaiðkunar í Reykjavík eru til fyrirmyndar og það markar okkur vissa sérstöðu að geta boðið upp á íþróttaaðstöðu, gistirými og aðra þjónustu í göngufæri. Vel skipulagðir Reykjavíkurleikar, íþróttaaðstaðan og ekki síst góðir gestgjafar gera það að verkum að erlendir keppendur vilja koma aftur og hróður Íslands og Reykjavíkur sem gestgjafa stórra íþróttaviðburða eykst. Reykjavíkurleikarnir krefjast mikils undirbúnings og vil ég þakka Íþróttabandalagi Reykjavíkur og sérsamböndum Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ) fyrir frábæra vinnu og gott samstarf. Íþrótta- og tómstundarráð (ÍTR) og Reykjavíkurborg eru stolt að því styðja við og vera hluti af leikunum. Einnig vil ég þakka öðrum stuðningsaðilum leikanna fyrir sitt framlag. Það að ná árangri krefst hæfileika en umfram allt ástríðu og vinnusemi. Það getum við með sanni sagt um okkar frábæra íþróttafólk en einnig um þá sem að íþróttastarfinu standa. Íþróttirnar glæða svo sannarlega borgina lífi og krafti!
Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar
Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar
Skoðun Draumurinn um ESB-samning er uppgjöf – Ekki fórna framtíðinni fyrir falsöryggi Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar