Innlent

Milljón til Margrétar og Bjarka

Bjarki Þór Jónsson, Jóhannes Nordal og Margrét Gunnarsdóttir.
Bjarki Þór Jónsson, Jóhannes Nordal og Margrét Gunnarsdóttir. mynd/seðlabankinn
Bjarki Þór Jónsson og Margrét Gunnarsdóttir hlutu í dag eins milljóna króna styrk úr menningarsjóði Seðlabanka Íslands sem kenndur er við Jóhannes Nordal, fyrrverandi Seðlabankastjóra.

Þetta var í annað skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum sem stofnað var til á 50 ára afmæli Seðlabankans árið 2011 og í tilefni þess að Þjóðhátíðarsjóður hafði þá lokið störfum.

Alls bárust 38 styrkumsóknir og ákvað úthlutunarnefnd að veita tveimur umsækjendum styrk, samtals að fjárhæð tvær milljónir króna. Bjarki Þór hlaut styrk til verkefnisins Upphaf, þróun og varðveisla íslenskra tölvuleikja, og Margrét til verkefnisins Þjóðbúningur verður til. Klæðaburður Íslendinga í aldanna rás.

Bjarki Þór Jónsson sótti um styrk í sjóðinn til að vinna verkefni sitt um upphaf, þróun og varðveislu íslenskra tölvuleikja. Verkefnið miðar að því að varðveita gögn sem tengjast íslenskum tölvuleikjum og tölvuleikjahönnun frá upphafi til dagsins í dag.

Verkefni Margrétar Gunnarsdóttur miðar að því að ljúka rannsókn á klæðaburði fólks á Íslandi í aldanna rás og tengja við menningarsögulega þróun landsins, auk þess að gefa út myndskreytt ritverk með niðurstöðum verkefnisins.

Formaður úthlutunarnefndar er Hildur Traustadóttir, fulltrúi í bankaráði Seðlabanka Íslands, en aðrir í nefndinni eru Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, og Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×