Hátt í sex þúsund greitt atkvæði utankjörfundar 18. apríl 2013 12:08
Alls hafa 5775 kosið utankjörfundar á landinu öllu samkvæmt upplýsingum frá Bergþóru Sigmundsdóttur, yfirmanni utankjörfundaratkvæðagreiðslu, en það er mun fleiri en þegar kosið var til Alþingis árið 2009. Þá kusu 1207 utankjörfundar. Bergþóra segir í samtali við Vísi að ýmislegt geti útskýrt þetta. Meðal annars varð mikill kippur í utankjörfundaratkvæðagreiðslum þegar fólki var gert kleift að greiða atkvæði í Laugardalshöll. Þá bendir Bergþóra á að einstaklingar sem búa erlendis geti núna kannað hvort þeir séu á kjörskrá áður en þeir greiða atkvæði í sendiráðum. Þannig hafi komið upp tilvik að einstaklingar hafi greitt atkvæði í nokkurn tíma án þess að gera sér grein fyrir því hvort þeir væru á kjörskrá. Það hafi ekki komið í ljós fyrr en atkvæðið var komið til Íslands. Bergþóra segir að það sé mikilvægt að fólk viti að það geti kosið utankjörfundar hjá sínum sýslumanni. Það þarf ekki endilega að fara niður í Laugardalshöll. Þá er hægt að kanna hvort maður sé á kjörskrá á heimasíðunni kosning.is. Þar er einnig hægt að finna út hvar og hvenær maður getur greitt atkvæði utankjörfundar annarstaðar en í Laugardalshöll. Spurð hvort góð þátttaka í kosningu utankjörfundar sé vísbending um að kjörsókn verði góð, svarar Bergþóra því til að svo þurfi ekki að vera. Þannig hafi verið gríðarleg þátttaka í utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir forsetakosningarnar, eða um 25 prósent, en að lokum hafi tæplega 70 prósent kosið. Kosningarnar fara fram 27. apríl.
Kosningar 2013 Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Fleiri fréttir Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Sjá meira