Hótel Borg – bréf til borgarstjóra Birna Þórðardóttir skrifar 15. mars 2013 06:00 Ágæti borgarstjóri Jón Gnarr. Ég ákvað að senda þér opinbert bréf, veit vel að þú ert ekki alvaldur enda slíkt ekki hollt en sem fulltrúi fólksins stíla ég bréfið á þig. Hótel Borg, hótelið í Reykjavík, eins og faðir minn sagði austur á Borgarfirði þegar hann átti erindi í bæinn, er með merkari byggingum í Reykjavík. Einungis þarf að hugsa til tenginga við þúsund ára afmæli Alþingis. Nú hefur verið leyft, af borgaryfirvöldum, að klastrað skuli utan á þessa formfögru byggingu Guðjóns Samúelssonar út- og uppskálum til þess að unnt verði fyrir eigandann að hala inn meira fé. Snýst miðborg Reykjavíkur, hjarta borgarinnar sem er miðborg allra landsmanna enda ekki annarri til að dreifa, um gróðavon og möguleika einstakra eignamanna? Er það þetta sem við viljum? Miðborg er annað og meira, miðborg er saga, menning og mannlíf. Verði haldið áfram að breiða yfir söguna, sem vissulega hefur meðvitað verið gert í miðborginni, verði haldið áfram að klastra upp á og utan um, nefni bara Naustið og Víkurgarð, verði haldið áfram að veita leyfi fyrir þau er eiga líf sitt eingöngu í gróðavon, þá er miðborgin dauð. Voruð þið kjörin til þessa, þið sem sitjið nú við stjórnvöl Reykjavíkurborgar, að fórna Hótel Borg? Ég sé annan möguleika á svæðinu: Rífa skúrinn á bak við Hótel Borg sem aldrei hefði átt að reisa, en það er annað mál. Þar er dásemdargarður þar sem jómfrúrnar á Jómfrúnni hafa haldið uppi frábærri starfsemi í alllangan tíma með sumardjassi og fleiru. Sá garður yrði tengdur við garðinn á bak við Hressó, þar sem Jörundur hundadagakóngur hóf garðrækt, eini kóngur sem búið hefur hér á landi. Planta nokkrum trjám, búa til skjól og við fengjum unaðsstað í miðborginni. Austurvöllur er ekki nóg, við erum svo mörg sem viljum geta átt góðan dag í miðborginni! Þannig að – ekki láta eyðileggja Hótel Borg – ekki eyðileggja möguleika fyrir tjúttaðasta torg miðborgarinnar! Með mjúkum miðborgarkveðjum, Birna Þórðardóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Ágæti borgarstjóri Jón Gnarr. Ég ákvað að senda þér opinbert bréf, veit vel að þú ert ekki alvaldur enda slíkt ekki hollt en sem fulltrúi fólksins stíla ég bréfið á þig. Hótel Borg, hótelið í Reykjavík, eins og faðir minn sagði austur á Borgarfirði þegar hann átti erindi í bæinn, er með merkari byggingum í Reykjavík. Einungis þarf að hugsa til tenginga við þúsund ára afmæli Alþingis. Nú hefur verið leyft, af borgaryfirvöldum, að klastrað skuli utan á þessa formfögru byggingu Guðjóns Samúelssonar út- og uppskálum til þess að unnt verði fyrir eigandann að hala inn meira fé. Snýst miðborg Reykjavíkur, hjarta borgarinnar sem er miðborg allra landsmanna enda ekki annarri til að dreifa, um gróðavon og möguleika einstakra eignamanna? Er það þetta sem við viljum? Miðborg er annað og meira, miðborg er saga, menning og mannlíf. Verði haldið áfram að breiða yfir söguna, sem vissulega hefur meðvitað verið gert í miðborginni, verði haldið áfram að klastra upp á og utan um, nefni bara Naustið og Víkurgarð, verði haldið áfram að veita leyfi fyrir þau er eiga líf sitt eingöngu í gróðavon, þá er miðborgin dauð. Voruð þið kjörin til þessa, þið sem sitjið nú við stjórnvöl Reykjavíkurborgar, að fórna Hótel Borg? Ég sé annan möguleika á svæðinu: Rífa skúrinn á bak við Hótel Borg sem aldrei hefði átt að reisa, en það er annað mál. Þar er dásemdargarður þar sem jómfrúrnar á Jómfrúnni hafa haldið uppi frábærri starfsemi í alllangan tíma með sumardjassi og fleiru. Sá garður yrði tengdur við garðinn á bak við Hressó, þar sem Jörundur hundadagakóngur hóf garðrækt, eini kóngur sem búið hefur hér á landi. Planta nokkrum trjám, búa til skjól og við fengjum unaðsstað í miðborginni. Austurvöllur er ekki nóg, við erum svo mörg sem viljum geta átt góðan dag í miðborginni! Þannig að – ekki láta eyðileggja Hótel Borg – ekki eyðileggja möguleika fyrir tjúttaðasta torg miðborgarinnar! Með mjúkum miðborgarkveðjum, Birna Þórðardóttir
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar