Þegar Elli kerling slæst í hópinn Níels Árni Lund skrifar 29. júlí 2013 07:00 Ég segi ekki að hún komi aftan að manni en smám saman verður vart við hana nálgast og svo er hún allt í einu komin einn daginn og fylgir manni svo áfram lífsgönguna, hvort heldur viðkomandi langar til að hafa hana sem ferðafélaga eður ei. Þetta er hún Elli kerling. Allt í einu var ég, kornungur, kominn í þennan stóra og sívaxandi hóp aldraðra; Elli kerling mætt mér við hlið en nokkuð ungleg og rösk til gangs og gagnlegra hluta. Ég ákvað að bægja henni ekki frá mér heldur reyna að hafa eitthvað gaman af kerlingunni fyrst hún var nú komin og eins og svo margir vita þá er hún margs fróð og getur hreint verið skemmtileg á köflum. Nóg með það. Svo talað sé í öfgum, sem er stundum gott til að skýra myndina, þá voru flestir dauðir hér áður fyrr upp úr sextugu; útslitið fólk sem við fáum seint fullþakkað lífgjöfina. Á þessum tímapunkti í lífi okkar erum við hins vegar að fara að velta fyrir okkur að hætta að vinna og taka til við áhugamálin og eitt og annað sem við höfum ætlað að gera þegar tími gæfist til. Fram undan er sum sé lífsins sena með flestu því sem hugurinn girnist, allt frá barnabörnum og upp í frímerki í kassa uppi á lofti. Ég ákvað að mæta þessum tímamótum með því að ganga í Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Fór inn á heimasíður FEB.is og borgaði árgjaldið, 3.500 krónur, og fékk þetta líka fína kort með ótal afsláttum í hinum og þessum verslunum og fyrirtækjum um land allt. Var búinn að fá kortið endurgreitt með svona tilboðum strax næsta dag eftir að hafa verslað garðvörurnar í ár. Fram undan er stanslaus gróði og sagði óljúgfróð kona mér að henni teldist til að hún sparaði tólf þúsund krónur á ári – bara á fiskinnkaupunum þrisvar í viku! Ég skora á alla sextíu ára og eldri að nýta sér þennan möguleika. Svo er allt hitt. Ég komst fljótt að raun um að á vegum félagsins í félagsheimilinu að Stangarhyl 4, í einni fjölsóttustu félagsmiðstöð aldraðra í Reykjavík, er öflug starfsemi; dans, brids, bókmenntaklúbbur, ferðalög, söngur og er þá fátt eitt upptalið – allt áhugamál mín ef út í það er farið. Maður þarf sem sagt ekkert að vera gamall – bara 60 ára – til að geta gengið í félagið með öllum réttindum og skyldum eins og þar segir. Nú er það svo að Elli kerling er með þeim ósköpum gerð að hún getur verið ferðafélagi margra í einu og fyrir ýmsa er hún ekki neitt skemmtileg. Hún getur hreint út sagt verið hundleiðinleg, ekki síst þegar líða tekur á ferðina – á það til að missa heyrn og sjón, verða léleg til gangs og ofan í kaupið getur fylgt henni einsemd sem síst er betra en annað. Ég hef þá trú að hver og einn ráði nokkuð um hvernig ferðafélagi kerlingin verður. Ágætu jafnaldrar. Hvort svo sem þið verðið nú varir við Elli gömlu eður ei, þá er hún ekki langt undan og seilist í kompaníið fyrr en varir. Taktu vel á móti henni, njóttu þess sem hún hefur að bjóða meðan hún er sæmilega hress og sannarlega er ein leiðin að því markmiði að ganga í Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Undirbúum börnin fyrir skólann með hjálp gervigreindar Sigvaldi Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir skrifar Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Undirbúum börnin fyrir skólann með hjálp gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Við krefjumst sanngirni og aðgerð strax Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Verðmætatap auðlindagjaldanna – Hverra og hvernig? Haukur V. Alfreðsson skrifar Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson skrifar Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Sjá meira
Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun
Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar
Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar
Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun