Harmageddon

Sannleikurinn: Ólafur Ragnar angraði leikmenn með sínum leiðinlegustu sögum til þessa

Andri Þór Sturluson skrifar
Helgi Valur og Alfreð voru að deyja úr leiðindum þar sem þeir sátu við hlið Ólafs. Gunnleifur Gunnleifsson, varamarkvörður, náði að læðast aftan að honum en hætti við að rota forsetann þegar hann sá ljósmyndara.
Helgi Valur og Alfreð voru að deyja úr leiðindum þar sem þeir sátu við hlið Ólafs. Gunnleifur Gunnleifsson, varamarkvörður, náði að læðast aftan að honum en hætti við að rota forsetann þegar hann sá ljósmyndara. KSÍ
Þegar forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, frétti af því að athygli var að fá í Zagreb í Króatíu var hann fljótur upp í næstu vél til að fá sinn skerf.

Knattspyrnusamband Íslands birti þessa mynd á Facebook síðu sinni en þar sést hvar Ólafur hefur troðið sér inn á íslenska liðið en samkvæmt KSÍ „tók forsetinn ekki annað í mál en að snæða hádegisverð með leikmönnum“ og skipti þá engu að klukkan var fjögur um nótt.

Leikmenn voru ræstir fram úr og stauluðust niður til að þóknast forseta sínum. Þeir snæddu brauðsneiðar og gufusoðið grænmeti honum til samlætis á meðan hann sagði gamansögur af sjálfum sér og gortaði af því þegar hann tók Þóru Arnórsdóttur „í kastljósið“ í seinustu forsetakosningum (hans orð).

Hringja þurfti í erlenda fjölmiðla og bjóða þeim viðtal við forsetann til að dreifa athygli hans á meðan leikmenn læddust aftur í bælið til að ná hvíld fyrir stóra leikinn.





Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu  en þar má oft sjá komment frá Ólafi.








×