Menn, tæki og hús á kafi í grútardrullu 23. febrúar 2013 07:00 Erfitt hefur reynst að vinna að hreinsun vegna veðuraðstæðna. Með hlýnandi veðri eykst rotnun og lyktin í firðinum er stæk. mynd/bjarni sigurbjörnsson
Aðstæður til hreinsunarstarfa í Kolgrafafirði eru erfiðar vegna hlýinda og rigningar. Allt er á kafi í grút og lyktin hrikaleg jafnt utan- sem innandyra. Tilraunir til að smala síld úr firðinum báru ekki árangur. Þykkt grútarlag litar fjörðinn gulan. Aðstæður til hreinsunarstarfa í Kolgrafafirði hafa snarversnað vegna hlýinda og rigninga undanfarna daga. Tíu til fimmtán þúsund tonn hafa þegar verið grafin niður í fjöruna og nokkur hundruð tonn af grúti verið flutt til urðunar. Tilraunir Hafrannsóknastofnunar til að fæla burt lifandi síld og háhyrninga úr firðinum báru ekki árangur. Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi á Eiði í Kolgrafafirði, segir aðstæður skelfilega erfiðar í Kolgrafafirði. „Það er allt að fara á kaf í drullu og viðbjóði. Veðurfarið vinnur gegn okkur. Það er allt útatað; menn, vélar og hús og lyktin ætlar allt að drepa,“ segir Bjarni. Kolgrafafjörður er rjómagulur á litinn vegna grútarmengunar að stórum hluta, segir Bjarni. Fjara sem var hreinsuð á miðvikudag er aftur orðin pökkuð af dauðri síld. „Þetta er nokkuð sem við áttum von á; við vissum af meiru í firðinum. En ég fullyrði að búið er að urða um fimmtán þúsund tonn nú þegar, svo það gengur verulega á þetta.“ Sérfræðingar Hafrannsóknarstofnunar verið við vöktun í firðinum, meðal annars til að meta umfang dauðrar síldar á botni fjarðarins. Sérfræðingar Hafró hófu á fimmtudag tilraunir til þess að fæla lifandi síld og hval út úr firðinum með hljóðmerkjum. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri hjá Hafró, segir að tilraunirnar hafi ekki borið árangur og ljóst að síldinni verður ekki smalað með þeim aðferðum sem hafa verið prófaðar til þessa. Þá vinnur Hafrannsóknarstofnun að áætlun um rannsókn á orsökum síldardauðans og hefur átt í samræðum við Vegagerðina um hugsanleg áhrif þverunar fjarðarins í því sambandi. Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, fór til eftirlitsstarfa í Kolgrafafirði og víðar á svæðinu í vikunni og sá tuttugu erni. Þeir virtust allir vel fleygir og því ekki grútarblautir, án þess að hægt sé að útiloka það. „Fuglalífið á svæðinu, sérstaklega í Urthvalafirði [Kolgrafafjörður utan brúar], er ævintýralega mikið. Síðdegis þennan dag voru líklega 20 þúsund fýlar á Urthvalafirði og þúsundir máfa og annarra fugla. Nokkur þúsund máfar og tvö til þrjú þúsund æðarfuglar voru innan brúar,“ er mat Róberts sem segir að vesturhluti Kolgrafafjarðar innan brúar, frá brú inn að Eiðisstöpum, sé mjólkurlitaður og gruggugur, sem minni helst á frárennsli frá fiskvinnslu. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira