Skoðun

Matvörukaup heimilanna

Erna Bjarnadóttir skrifar
Formaður Samtaka verslunar og þjónustu gerði útgjöld heimilanna til matvörukaupa að umtalsefni í ræðu sinni við setningu aðalfundar samtakanna þann 21. mars sl. Taldi hún raunhæft að lækka þau um 3,5 milljarða króna með því að láta versluninni eftir að flytja inn kjúklingabringur. Þessi fyrirheit formannsins þarfnast nánari skoðunar.

Hagstofa Íslands rannsakar reglulega útgjöld heimilanna og metur samsetningu vísitölu neysluverðs. Samkvæmt skýrslu hennar um útgjöld heimilanna árin 2009-2011 voru árleg meðalútgjöld til matvörukaupa 701.810 krónur. Frá febrúar 2010 til febrúar 2013 hækkaði verðlag um nálægt 13,5% og því lætur nærri að þessi fjárhæð sé um 760.000 krónur í dag.

Hagstofan áætlar að um 0,58% af útgjöldum meðalheimilis séu til kaupa á alifuglakjöti eða um 35.000 krónur á ári. Sum heimili kaupa eðlilega meira en önnur minna eins og gengur. Höldum því til haga að hér er um allt alifuglakjöt að ræða, ekki bara kjúklingabringur. Heildarútgjöld 130.000 heimila (sem er fjöldinn sem formaður SVÞ notar í sínu dæmi) til kaupa á öllu alifuglakjöti á ári eru samkvæmt þessu 4,5 milljarðar króna. Erfitt er sjá að með innflutningi á kjúklingabringum sé hægt að spara 3,5 milljarða króna á ári. Þetta er dæmi sem gengur ekki upp.

Innan við helmingur

Um 12,9% af útgjöldum heimilanna fara til kaupa á matvörum. Innlendar búvörur eru innan við helmingur þessara útgjalda. Útgjöld til kaupa á grænmeti og vörum úr grænmeti og kartöflum eru 1,16% af útgjöldum heimilanna. Talsvert af grænmeti er flutt inn árið um kring. Mikilvægar grænmetistegundir eins og tómatar, gúrkur og paprika eru án tolla allt árið. Bændur í þessari framleiðslu fá beingreiðslur frá hinu opinbera til að styðja við reksturinn. Tollar eru lagðir á nokkrar tegundir útiræktaðs grænmetis meðan íslensk framleiðsla er á markaði á haustin og framan af vetri.

Kaup á kjöti eru 2,8% útgjalda heimilanna og 2,4% eru til kaupa á osti, eggjum og mjólkurvörum, alls 5,2%. Þessir tveir vöruflokkar svara til um 40% af útgjöldum heimilanna til matvörukaupa. Auðvitað er hægt að velta fyrir sér áhrifum verðlækkunar á þessum vörum. Tíu prósenta lækkun útgjalda til þessara tveggja flokka myndi t.d. skila 0,5% lækkun á útgjöldum heimilanna. Spyrja má hvort verslunin eigi ekki aðra og nærtækari möguleika til að færa heimilunum slíkan sparnað. Afgreiðslutími verslana er t.d. óvíða jafn langur og þekkist hér á landi og fjárfesting í verslunarhúsnæði er mikil.

Afnám tollverndar mun auka svigrúm smásölunnar til að afla sér aðfanga annars staðar og bæta stöðu hennar á kostnað bænda. Þetta mun að öllum líkindum leiða til breytinga á verðmyndun búvara þannig að stærri hluti álagningar falli smásölunni í skaut. Reynsla Finna bendir til þess að völd smásölunnar hafi aukist við inngöngu Finnlands í Evrópusambandið og að vinnslu og smásölu hafi gengið mun betur að viðhalda eigin álagningu en bændum. Áhugi fyrirtækja í verslun með dagvöru á afnámi innflutningstolla er hins vegar skiljanlegur í þessu ljósi.




Skoðun

Sjá meira


×