Hvers eiga dýrin að gjalda? Guðný Nielsen skrifar 13. desember 2013 07:00 Ekkert lát virðist á vinsældum loðfelda á Íslandi og er það ekki síst áberandi nú í aðdraganda jólanna þegar kuldinn sækir að landsmönnum. Búið er að fylla á lagera verslana og mikið úrval tegunda er að finna í hillum. Loðfeldur er vinsæl jólagjöf í ár líkt og undanfarið. Flík sem áður var munaðarvara, kostaði handlegg og var oft aðeins gefin á stórafmælum er nú seld í flestum tískuvöruverslunum á verði sem neytendur ráða auðveldlega við. Hvernig má það vera? Kínverjar eru stærstu framleiðendur loðfeldar á heimsvísu. Kínversk bú eru óteljandi og þeim fer fjölgandi. Sögum ber ekki saman um það hvort lög um dýravelferð séu yfirhöfuð til staðar í Kína. Aðferðir, sem beitt er við loðdýraframleiðslu þar, eru vægast sagt hræðilegar og næsta víst að íslensku búi yrði samstundis lokað, gerðist íslenskur framleiðandi uppvís að því að beita sömu aðferðum. Framleiðslan í Kína miðar að því einu að hámarka hagnað. Búin stækka og framleiðslukostnaðurinn lækkar. Keppst er við að koma sem flestum dýrum á hvern fermetra, sem minnstu er kostað til við fóður, vatn, hita og birtu; rétt þannig að dýrin haldist á lífi nógu lengi til þess að hægt sé að koma loðfeldinum í verð. Kostnaður við aflífun er mismikill og aðferðirnar margar eins og ógrynni myndbanda á veraldarvefnum sýna. Dýrin eru ýmist kæfð með útblæstri frá mótor, gefið raflost í endaþarm, barin til dauða með prikum, stigið á háls þeim og stappað og þau jafnvel fláð lifandi. Þessar myndbandsklippur geta eflaust fáir horft á til enda. Loðfeldur í íslenskum verslunum er iðulega merktur íslensk hönnun, en hvergi kemur fram upprunaland feldarins. Íslenskir loðdýrabændur selja allan sinn loðfeld úr landi og þar sem Kínverjar framleiða mest allra af loðfeldi er ekki erfitt að gera sér í hugarlund hvaðan ódýri loðfeldurinn, sem við sjáum hér í verslunum, kemur. Samstillt átak tískuhúsa og framleiðenda hefur byrgt okkur sýn á það hvers dýrin raunverulega gjalda til þess að við getum klæðst þessari tískuvöru. Standa íslenskir neytendur kannski í þeirri trú að lög og reglugerðir komi einhvern veginn í veg fyrir að vörur framleiddar á þennan hátt nái inn á íslenskan markað? Á meðan við gerum ekki lágmarkskröfur til framleiðenda um að velferð dýranna sé tryggð mun þessi tískuvara halda sessi sínum á íslenska markaðnum. Hvar drögum við línuna? Hvers eiga dýrin að gjalda? Munum að við kjósum með veskinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar