Ekkert að stressa okkur á veðurspánni Kristjana Arnarsdóttir skrifar 5. júní 2013 14:30 Umboðsmaðurinn Óli geir spáir sólskini í Keflavík um helgina. Söngdívan Iggy Azalea er á meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni. „
Miðasalan gengur frábærlega og við erum ekki að stressa okkur á neinu,“ segir umboðsmaðurinn Ólafur Geir Jónsson, sem stendur fyrir Keflavík Music Festival. Hátíðin hefst formlega í kvöld og lýkur á sunnudag. Veðrið hefur ekki verið að leika við landsmenn það sem af er sumri og á Suðurnesjum hefur það verið ansi slæmt að undanförnu. Því er vert að spyrja hvort einhverjar ráðstafanir verði gerðar fyrir gesti hátíðarinnar, en boðið er upp á þann möguleika að tjalda í Keflavík. „Tónleikarnir verða ekki úti og fólkið verður inni í tjöldunum en ekki fyrir utan þau, svo við erum ekkert stressaðir. Veðrið skiptir engu máli,“ segir Óli Geir, pollrólegur yfir veðurspánni. Fjölmargir íslenskir og erlendir listamenn koma fram á hátíðinni. Er ekki mikil spenna fyrir stóru nöfnunum? „Jú, það er gríðarlega mikil spenna, sérstaklega þegar það er svona stutt í þetta. Fólk er oft lengi að taka við sér í miðasölu en núna er þetta að koma,“ segir Óli Geir. Eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá er von á spennandi tónleikasumri þar sem Frank Ocean, Deep Purple, Nick Cave og Band of Horses eru á meðal þeirra sem halda tónleika hér á landi. Það er því ljóst að margir verða að velja og hafna þegar kemur að tónleikunum, en eitthvað hefur borið á því að gestir hafi reynt að losa sig við miða á Keflavík Music Festival á Facebook og bland.is. Er þetta eitthvað sem þú hefur tekið eftir? „Nei, alveg alls ekki. Miðasalan hefur gengið vonum framar,“ segir Óli Geir og segir hátíðina vera búna að festa sig í sessi. „Þetta er í annað sinn sem við höldum þessa hátíð og hún er stærri og fjölbreyttari en fyrr, svo þetta er bara það sem koma skal. Svo er líka alltaf sól í Keflavík,“ segir Óli Geir léttur að lokum.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“