Skoðun

Er bakland ferðaþjónustufyrirtækja í lagi?

Fjóla Guðjónsdóttir skrifar

Mikil fjölgun hefur orðið í fjölda ferðamanna sem koma til Íslands og á þessu ári er búist við að ferðaþjónustan verði ein þeirra atvinnugreina sem skapar hvað mestar gjaldeyristekjur. Samfara fjölgun ferðamanna hafa öryggismál ferðaþjónustunnar verið talsvert í umræðunni enda mikilvægt að tryggja öryggi ferðamanna eins og kostur er.

Hraður vöxtur atvinnugreinarinnar þýðir að fyrirtækin sjálf eru mismunandi, bæði að stærð og umfangi. Mörg fyrirtæki eru viðkvæm fyrir ytri áföllum og oft þarf lítið að koma upp á til þess að rekstur þeirra fari úr skorðum.

Sérstaklega á þetta við um minni eða ný ferðaþjónustufyrirtæki sem mega ekki við rekstrartruflunum eða áföllum sem má t.d. rekja til bilana, tjóna eða slysa á starfsfólki eða viðskiptavinum. Undirbúningur fyrir slík áföll getur skilið á milli þess hvort fyrirtækið verður undir í samkeppni eða nær að stækka og eflast. Slys sem má rekja til þess að búnaður eða tæki uppfyllir ekki öryggiskröfur þannig að ferðaþjónustuaðili verður skaðabótaskyldur, getur haft gríðarlegar afleiðingar fyrir atvinnugreinina í heild sinni. Þær afleiðingar má ekki vanmeta.

Taki forvarnir alvarlega

Ferðamálastofa hefur gefið út leiðbeinandi reglur um öryggismál fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og fyrirséð er að aukin áhersla mun vera lögð á öryggismál í löggjöf í framtíðinni. Það er gríðarlega mikilvægt að fyrirtæki taki forvarnir og öll öryggismál alvarlega og nýti þær leiðbeiningar og þá aðstoð sem í boði er. Í almennri umræðu um ferðaþjónustuna eru forvarnir oftar en ekki eingöngu skilgreindar sem slysavarnir. Í þeirri umræðu gleymist að horfa til tjónavarna og þess hversu mikilvægt það er að koma í veg fyrir tjón á húsnæði eða öðrum eignum fyrirtækjanna.

Það er of sjaldan brýnt fyrir ferðaþjónustuaðilum að ganga úr skugga um að þeir séu rétt tryggðir, m.t.t. þeirrar þjónustu sem þeir bjóða upp á og í takt við umfang þess rekstrar sem þeir eru í. Það getur skipt sköpum að fyrirtækið sé rétt vátryggt þannig að það geti haldið áfram rekstri ef til bótaskyldra tjóna kemur.

Undirbúningur gönguferða

Þessa dagana býður Slysavarnafélagið Landsbjörg og Safetravel upp á námskeið fyrir almenning um gönguferðir. Einnig eru í boði örnámskeið fyrir starfsmenn fyrirtækja um undirbúning gönguferða. Mikið framboð er af skipulögðum gönguferðum, bæði fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn, og því hvetur Sjóvá fyrirtæki og almenning til þess að kynna sér fræðslu Safetravel.

Baklandið

Sjóvá er hluti af ferðaþjónustuklasanum sem settur var á stofn 9. október síðastliðinn. Félagið tekur þátt í samstarfinu m.a. vegna þess að tryggingar eru nauðsynlegur hluti af baklandi ferðaþjónustufyrirtækja. Reynslan sýnir að það getur reynst fyrirtækjum og greininni í heild dýrkeypt ef vátryggingar fyrirtækjanna eru ekki í lagi. Því hvetur Sjóvá öll fyrirtæki í ferðaþjónustu til að leita sér ráðgjafar í upphafi rekstrar og einnig þegar fyrirsjáanlegar eru breytingar á þjónustu fyrirtækisins.




Skoðun

Sjá meira


×