Ármann, eldhress gamlingi Freyr Ólafsson skrifar 11. maí 2013 07:00 Ármann er kominn til ára sinna. Hann steig sín fyrstu skref í miðborg Reykjavíkur undir lok þar síðustu aldar. Hann var nefndur eftir gömlum glímuþjálfara ofan úr Þingvallasveit, Ármanni í Ármannsfelli. Eins og aldraðra er háttur er Ármann hógvær fram úr hófi. Ber sér ekki á brjóst, þótt fullt tilefni sé til. Hann á glæsilegan og stóran barnahóp sem dafnar vel og hefur meira að segja bæst í hópinn fram á síðustu ár. Börnin eru vel þekkt, nefna má sem dæmi dæturnar Fimi, Sund og Glímu og soninn Skíða. Alls eru börnin ellefu. Þeirra fósturbörn samtals um tvö þúsund á liðnum vetri. Verandi elstur eftirlifandi systkina sinna hefur Ármann reynt að fara á undan með góðu fordæmi. Hann hefur ekki safnað skuldum og á nú, ólíkt sumum systkinum sínum, ágætis varasjóð. Hann hefur reynst þægilegur í umgengni og flutt sig til eftir því sem fóstra hans, frk. Reykjavík, hefur beðið hann um. Heimili Ármanns er nú í bakgarði Þróttar, góðvinar hans. Húsakynnin eru ný og vistleg, þó þau rúmi ekki alla fjölskylduna. Sérstaklega langar þann gamla í stóra stofu til að geta tekið á móti gestum. Kannski fóstra hans byggi fyrir hann stofu á næsta stórafmæli?Þakklátt fóstra sínum Fjöldi barna og ungmenna sem Ármann hefur alið upp er meiri en nokkur hefur tölu á. Þetta er fólk sem hefur farið víða og er flest þakklátt fóstra sínum. Gísli Örn leikari, Magnús Scheving athafnaskáld, Guðrún Arnardóttir grindahlaupari, Bjarni Friðriksson júdókappi og auðvitað Ásdís Hjálms, hafa öll átt góðar stundir með Ármanni. Ekki má heldur gleyma hetjum fyrri ára, Hermanni Jónassyni, fyrrum forsætisráðherra, Guðmundi Arasyni í smíðajárni eða sómakonunni Guðrúnu Nielsen, svo einhver séu nefnd. Þau voru eins og fleiri ekki bara fóstruð af Ármanni heldur hjálpuðu til við að ala upp fjölda annarra ungmenna. Ármann verður 125 ára undir lok árs. Á afmælisári vill fjölskyldan gera eitthvað honum til heiðurs. Í dag 11. maí, klukkan 10.00 ræsum við Afmælishlaup Ármanns við Þvottalaugarnar í Reykjavík (rétt hjá núverandi heimili hans). Í anda þess gamla verður unga fólkið í aðalhlutverki, þó öllum sé frjálst að hlaupa. Ekkert kostar að taka þátt. Allir þátttakendur fá viðurkenningu að hlaupi loknu. Óskandi er að sem flestir nágrannar, vinir, fósturbörn og þeirra börn komi og gleðjist með gamlingjanum á laugardaginn kemur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira