Fríverslun við Bandaríkin fær óvæntan stuðning Birgir Þórarinsson skrifar 23. mars 2013 06:00 Undirritaður flutti á Alþingi í október 2010 þingsályktun um fríverslun við Bandaríkin. Fríverslun við Bandaríkin, stærsta hagkerfi heims, er mikið hagsmunamál fyrir Ísland. Í henni felast fjölmörg ný tækifæri fyrir neytendur, inn- og útflutning, fyrirtæki og fjárfestingar. Við undirbúning málsins átti ég m.a. fund með ráðamönnum í Washington. Kom það vel í ljós að þeir voru áhugasamir um málið. Það var ekki síst þess vegna sem tillagan var flutt. Gat ég þess í umræðum á Alþingi að áhugi væri á málinu af hálfu Bandaríkjanna. Þrátt fyrir það náði tillagan ekki fram að ganga og skrifast það á áhugaleysi ríkisstjórnarflokkanna. Þeim hefur eflaust þótt það slæmt að draga athyglina frá ESB-umsókninni. Nýverið kom fram í fjölmiðlum að utanríkisráðherra hefur skrifað hinum nýja utanríkisráðherra Bandaríkjanna, John Kerry, bréf þar sem hann óskar eftir aðkomu Íslands að væntanlegum fríverslunarviðræðum Bandaríkjanna og ESB. Haft var eftir John Kerry að viðræðurnar yrðu ekki einskorðaðar við ríki ESB heldur einnig önnur ríki er tengjast evrópsku samstarfi. Þetta verður ekki skilið á annan veg en að aðild að ESB skipti ekki höfuðmáli í þessu sambandi. Þetta eru mikil tíðindi í ljósi fyrri orða um að gangi Ísland í ESB fáist fríverslun við Bandaríkin í bónus. Utanríkisráðherra er þróttmikill og vaskur stjórnmálamaður og þá sérstaklega þegar kemur að málefnum ESB. Hann hefur ekki sleppt hendinni af ESB-umsókn Íslands þótt vaða hafi þurft eld og brennistein, heima og heiman. Ég vil þakka utanríkisráðherra fyrir þann áhuga sem hann sýnir nú fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Það lítur hins vegar út fyrir að honum muni ekki endast pólitískt líf í ráðuneytinu til að ljúka málinu. Það hefur komið á daginn að Bandaríkin hafa áhuga á viðræðum við Ísland. Ráðherra hefði átt að styðja þingsályktun mína fyrir rúmum 2 árum, hefja tvíhliða viðræður við Bandaríkin og vera þar með á undan ESB. Það hefði komið honum á spjöld sögunnar. Ísland á fjölmörg sóknarfæri í alþjóðasamskiptum án Evrópusambandsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Undirritaður flutti á Alþingi í október 2010 þingsályktun um fríverslun við Bandaríkin. Fríverslun við Bandaríkin, stærsta hagkerfi heims, er mikið hagsmunamál fyrir Ísland. Í henni felast fjölmörg ný tækifæri fyrir neytendur, inn- og útflutning, fyrirtæki og fjárfestingar. Við undirbúning málsins átti ég m.a. fund með ráðamönnum í Washington. Kom það vel í ljós að þeir voru áhugasamir um málið. Það var ekki síst þess vegna sem tillagan var flutt. Gat ég þess í umræðum á Alþingi að áhugi væri á málinu af hálfu Bandaríkjanna. Þrátt fyrir það náði tillagan ekki fram að ganga og skrifast það á áhugaleysi ríkisstjórnarflokkanna. Þeim hefur eflaust þótt það slæmt að draga athyglina frá ESB-umsókninni. Nýverið kom fram í fjölmiðlum að utanríkisráðherra hefur skrifað hinum nýja utanríkisráðherra Bandaríkjanna, John Kerry, bréf þar sem hann óskar eftir aðkomu Íslands að væntanlegum fríverslunarviðræðum Bandaríkjanna og ESB. Haft var eftir John Kerry að viðræðurnar yrðu ekki einskorðaðar við ríki ESB heldur einnig önnur ríki er tengjast evrópsku samstarfi. Þetta verður ekki skilið á annan veg en að aðild að ESB skipti ekki höfuðmáli í þessu sambandi. Þetta eru mikil tíðindi í ljósi fyrri orða um að gangi Ísland í ESB fáist fríverslun við Bandaríkin í bónus. Utanríkisráðherra er þróttmikill og vaskur stjórnmálamaður og þá sérstaklega þegar kemur að málefnum ESB. Hann hefur ekki sleppt hendinni af ESB-umsókn Íslands þótt vaða hafi þurft eld og brennistein, heima og heiman. Ég vil þakka utanríkisráðherra fyrir þann áhuga sem hann sýnir nú fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Það lítur hins vegar út fyrir að honum muni ekki endast pólitískt líf í ráðuneytinu til að ljúka málinu. Það hefur komið á daginn að Bandaríkin hafa áhuga á viðræðum við Ísland. Ráðherra hefði átt að styðja þingsályktun mína fyrir rúmum 2 árum, hefja tvíhliða viðræður við Bandaríkin og vera þar með á undan ESB. Það hefði komið honum á spjöld sögunnar. Ísland á fjölmörg sóknarfæri í alþjóðasamskiptum án Evrópusambandsins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar