Beyoncé fær misjafna dóma í Kaupmannahöfn ÁP og ÞÞ skrifar 28. maí 2013 14:34 Gagnrýnandi Ekstra Bladet var ekki sérlega hrifin af tónleikum Beyoncé Knowles í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. MYND/SKJÁSKOT
Eins og fram hefur komið fjölmenntu Íslendingar í Forum höllina í gær til að sjá stórstjörnuna Beyoncé Knowles koma fram. Eftirvæntingin eftir poppdrottningunni var gífurleg en gagnrýnendur voru ekki allskostar sammála um frammistöðu hennar á sviðinu. Gagnrýnandi Extra Bladet var sá fyrsti til að skila inn sínum dómi yfir tónleika söngkonunnar. Gagnrýnin nefnist Popp fyrir heyrnalausa og fá tónleikarnir þrjár stjörnur af sex mögulegum. Hann líkir poppdrottningunni við hermann á leið í stríð eða íþróttamanni á leið í keppni er hún stígur á svið. Samt sem áður er hann ekki í skýjunum með sönginn hjá Beyoncé og segir tónleikana hafa litið betur út en þeir hljómuðu. Þá gagnrýnir hann stöðug búningaskipti söngkonunnar. „Þrátt fyrir að tónleikarnir hafi verið frá 20.59-22.53 var söngkonan í mesta lagi á sviðinu í fimm kortér vegna þess að hún var alltaf að fara baksviðs til að skipta um föt.“ Helgi Ómarsson var mjög framarlega á tónleikunum í Kaupmannahöfn í gær. Skiptar skoðanir Helgi Ómarsson, ljósmyndari og tískubloggari á Trendnet.is var mjög framarlega á tónleikunum í gær og segir þá hafa verið stórkostlega upplifun. „Hún bara dáleiddi mann algjörlega, ég var í transi.“ Helgi er mjög ósammála gagnrýnenda Ekstra Bladet og hefur ekkert út á búningaskiptin að setja. „Það var magnað að fylgjast með henni fara svona úr einu í annað. Þetta var rosalegt show fyrir bæði eyru og augu sem ég get ekki annað en lofsamað. Hún fór fram úr öllum mínum væntingum.“ Þess má geta að gagnrýnendur hinna dönsku blaðanna voru ívið jákvæðari í garð Beyoncé, en Jyllandsposten og BT gefa tónleikunum fimm stjörnur af sex möguleikum.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Hvað veistu um... fugla? Lífið Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Fleiri fréttir Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Sjá meira