Ólympíuleikar í Rússlandi – Já eða nei? Reynir Þór Eggertsson skrifar 20. ágúst 2013 07:00 Undanfarna viku hefur heimsmeistaramót í frjálsum íþróttum farið fram í Moskvu. Margir lesendur hafa eflaust frétt að í Rússlandi voru sett hræðileg lög fyrr í sumar sem takmarka mjög réttindi homma og lesbía og í kjölfarið hafa ofsóknir gegn samkynhneigðum bræðrum okkar og systrum aukist í landinu, og hafa nokkrir m.a.s. verið drepnir vegna kynhneigðar sinnar. Þessu ástandi mótmælti sænski hástökkvarinn Emma Green Tregaro með því að lakka á sér neglurnar í regnbogalitunum fyrir undankeppnina þar sem hún komst áfram í úrslit. Í kjölfarið lét rússneski heimsmeistarinn í stangarstökki Élena Ísinbajeva hafa eftir sér að hún styddi nýju lögin jafnframt því sem hún fordæmdi samkynhneigð, og missti um leið virðingu og aðdáun margra á Vesturlöndum. Síðastliðinn laugardag fóru fram úrslit hástökkskeppninnar þar sem Emma lenti í 5. sæti. Þrátt fyrir þennan góða árangur var hún aldrei sýnd í útsendingunni frá Moskvu – aldrei! Allir hinir ellefu keppendurnir sem voru í úrslitum voru sýndir einhvern tímann, meira að segja þær sem lentu í 9., 10., 11. og 12. sæti. Ég get ekki túlkað þetta öðruvísi en sem refsingu og algjöra ritskoðun á þeim skilaboðum sem Emma vildi koma á framfæri. Á næsta ári verða Vetrarólympíuleikar haldnir í Rússlandi. Margir telja að rangt sé að sitja heima eða flytja Ólympíuleikana annað, heldur eigi einmitt að fara til Rússlands til að reyna að koma skilaboðum á framfæri við stjórnvöld og almenning. Sjónvarpsútsendingin frá Moskvu á laugardaginn sýndi að allar slíkar tilraunir verða bældar niður með öllum tiltækum ráðum. Einu skilaboðin sem umheimurinn sýnir með því að taka þátt í og halda Ólympíuleika í Rússlandi nútímans er stuðningur við Pútín og hans kóna. Því segi ég: Sitjum heima! Ég ætla allavega að slökkva á sjónvarpinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Undanfarna viku hefur heimsmeistaramót í frjálsum íþróttum farið fram í Moskvu. Margir lesendur hafa eflaust frétt að í Rússlandi voru sett hræðileg lög fyrr í sumar sem takmarka mjög réttindi homma og lesbía og í kjölfarið hafa ofsóknir gegn samkynhneigðum bræðrum okkar og systrum aukist í landinu, og hafa nokkrir m.a.s. verið drepnir vegna kynhneigðar sinnar. Þessu ástandi mótmælti sænski hástökkvarinn Emma Green Tregaro með því að lakka á sér neglurnar í regnbogalitunum fyrir undankeppnina þar sem hún komst áfram í úrslit. Í kjölfarið lét rússneski heimsmeistarinn í stangarstökki Élena Ísinbajeva hafa eftir sér að hún styddi nýju lögin jafnframt því sem hún fordæmdi samkynhneigð, og missti um leið virðingu og aðdáun margra á Vesturlöndum. Síðastliðinn laugardag fóru fram úrslit hástökkskeppninnar þar sem Emma lenti í 5. sæti. Þrátt fyrir þennan góða árangur var hún aldrei sýnd í útsendingunni frá Moskvu – aldrei! Allir hinir ellefu keppendurnir sem voru í úrslitum voru sýndir einhvern tímann, meira að segja þær sem lentu í 9., 10., 11. og 12. sæti. Ég get ekki túlkað þetta öðruvísi en sem refsingu og algjöra ritskoðun á þeim skilaboðum sem Emma vildi koma á framfæri. Á næsta ári verða Vetrarólympíuleikar haldnir í Rússlandi. Margir telja að rangt sé að sitja heima eða flytja Ólympíuleikana annað, heldur eigi einmitt að fara til Rússlands til að reyna að koma skilaboðum á framfæri við stjórnvöld og almenning. Sjónvarpsútsendingin frá Moskvu á laugardaginn sýndi að allar slíkar tilraunir verða bældar niður með öllum tiltækum ráðum. Einu skilaboðin sem umheimurinn sýnir með því að taka þátt í og halda Ólympíuleika í Rússlandi nútímans er stuðningur við Pútín og hans kóna. Því segi ég: Sitjum heima! Ég ætla allavega að slökkva á sjónvarpinu.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar