Stefán Logi hefur ekki verið yfirheyrður María Lilja Þrastardóttir skrifar 22. júlí 2013 06:45 Stefán Logi Sívarsson er í gæsluvarðhaldi en hefur ekki verið yfirheyrður.
Stefán Logi Sívarsson, sem grunaður er um um að hafa í félagi við aðra svipt mann frelsi sínu í höfuðborginni fyrir um tveimur vikum og pyntað, hefur ekki verið yfirheyrður af lögreglu. Lögmaður hans, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, segir þau vinnubrögð lögreglu gagnvart skjólstæðingi sínum í málinu ámælisverð. Stefán hefur setið í gæsluvarðhaldi í rúma viku. Meirihluta varðhaldsins hefur hann dvalið í einangrunarklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu en var fluttur þaðan á Litla-Hraun á föstudaginn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur ekki þótt tilefni til að taka af Stefáni skýrslu enn sem komið er. „Ég get lítið tjáð mig um málið að svo stöddu, nema að rannsókn er í fullum gangi,“ segir Jón H.B. Snorrason aðstoðaryfirlögregluþjónn. Stefán Logi var handtekinn þann 13. júlí síðastliðinn og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í kjölfarið. Sérsveit lögreglu handtók Stefán í Miðhúsaskógi í Biskupstungum eftir umfangsmikla leit á öllu Suðurlandi. Stefán Logi Sívarsson og fjórir menn til viðbótar eru grunaðir um aðild að minnst þremur alvarlegum líkamsárásarmálum undanfarnar vikur. Alls hafa fimm menn verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Stefáni Loga rennur út næstkomandi föstudag, að öllu óbreyttu.
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Fleiri fréttir Aðstoðar Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Sjá meira