Fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins dæmdur 11. apríl 2013 09:40 Gunnar ásamt verjanda sínum.
Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, var dæmdur til þess að greiða tvær milljónir króna í sekt ella sæta fangelsi í 44 daga, fyrir brot í opinberu starfi vegna alvarlegra trúnaðarbrota þegar hann lak upplýsingum um eignarhaldsfélagið Bogamanninn til DV á síðasta ári. Starfsmaður Landsbankans, Þórarinn Már Þorbjörnsson, sem kom upplýsingunum til Gunnars, var dæmdur til þess að greiða eina milljón í sekt ella sæta fangelsi í 40 daga. Að auki voru þeir dæmdir til að greiða málsvarnarlaun verjenda sinna. Gunnar greiðir Guðjóni Ólafi Jónssyni rúmar 2,3 milljónir króna og þóknun verjanda síns á rannsóknarstigi málsins. Þórarinn greiðir Hilmari Magnússyni tæpar 590 þúsund krónur. Gunnar fékk starfsmann Landsbankans til að afla gagna úr bókhaldi bankans um viðskipti Bogamannsins ehf. sem hann afhenti Ársæli Valfells, en um var að ræða skjal sem sýndi að Landsbanki Íslands hf. greiddi 32.7 milljónir króna inn á bankareikning Bogamannsins ehf. 13. júní 2003. Ársæll kom svo umræddum upplýsingum að beiðni Gunnars til fréttastjóra DV sem nýtti þær við ritun fréttar um viðskiptin sem birtist í DV 29. febrúar 2012. Þetta gerði Gunnar í því skyni að skapa umræðu um viðskipti félagsins og eiganda þess, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins, við Landsbanka Íslands hf., sem Gunnar taldi óeðlileg og vegna þess að hann hafi talið Guðlaug Þór hafa í opinberri umræðu reynt að gera hann sem forstjóra Fjármálaeftirlitsins tortryggilegan sem og stofnunina sjálfa. Gunnar átti á þessum tíma í harkalegum átökum við stjórn FME sem hafði látið kanna hæfni Gunnars sem forstjóra FME vegna fyrri starfa í bankakerfinu. Hann var svo rekinn þegar í ljós kom að hann hefði lekið upplýsingunum.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira