Gjafafé Sverrir Hermannsson skrifar 2. janúar 2013 06:00 Í Morgunblaðinu laugardaginn 22. desember eru álitlegar fréttir. Hin stærsta af höfðinglegri gjöf fyrirtækisins Skinneyjar-Þinganess til sveitarfélagsins Hafnar í Hornafirði vegna afmælis gefandans. Þá er á síðunni getið um að hald hafi verið lagt á mikið magn af þýfi á Suðurnesjum og enn önnur þar sem kona viðurkennir að hafa í ?tvígang? kveikt í sameign fjölbýlishúss við Maríubakka í Breiðholti. Hinar tvær síðarnefndu fréttirnar eru þó lítils virði á við stórhug Skinneyjar-Þinganess, fyrirtækis þar sem einn af eigendum er fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og ráðherra, Halldór Ásgrímsson.Milljarða afskriftir Eftir milljarða afskriftir af tapfyrirtækinu Mónu hefir Skinney & co. rifið af sér og sett sig í gjafastellingar, sem skiljanlegt er. Hins vegar segir ekkert í fréttinni um hverslags fyrirtæki Móna var, né heldur hvernig það komst yfir öll þau auðævi, sem afskrifa þurfti, milljarða króna. Sérstakur saksóknari má ekkert vera að því að huga að slíkum málum enda búinn á nærri fjórum árum að ákæra upp undir einn tug útrásarvíkinga og hefir þó ekki nema 120 – eitt hundrað og tuttugu – manns í vinnu. Frétt kom hins vegar um það í blöðum, að þrjú félög víkinga hefðu orsakað 320 – þrjú hundruð og tuttugu – milljarða tap fyrir íslenzkt þjóðfélag. Sem betur fer mun enginn þurfa að borga það tap frekar en Mónu-tapið á Hornafirði.Gottgjörelsi Spurning: Hvað ætli þeir 320 milljarða menn gefi til „gottgjörelsis“ sér þegar þar að kemur? „Hér dugar ekkert kák, Pétur Jónsson“ eins og maðurinn á Húsavík sagði um árið, þegar hann kom að brennandi húsi; tók höndum um fulla sláturtunnu, hvolfdi úr henni og bar hana tóma út. Mætti kannski benda víkingum á eins og andvirði einnar Hörpu til að byrja með? Hinu má svo skjóta hér inn í að Sérstakur saksóknari gerir ekkert annað og meira en dómsmálaráðherrann ætlaðist til þegar hann fól honum embættisstörfin, sem vonlegt er. Um aðaleiganda Skinneyjar-Þinganess og síðar Mónu er nægjanlegt að vísa í ummæli hins nýja formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Illuga Gunnarssonar, þar sem hann segir í grein í Fréttablaðinu 18. júní 2006: „Vandi Framsóknarflokksins er ekki sá að flokkurinn geti ekki verið stoltur af verkum sínum eða stefnu, þvert á móti.“ Um kynni manna af Halldóri Ásgrímssyni fórust Illuga þau orð í sömu grein: „Þau kynni hefðu átt að duga því fólki til að vita að Halldór Ásgrímsson myndi einungis vinna eftir bestu sannfæringu.“ Mikil lifandi ósköp er gaman og ánægjulegt að sjá þegar víkingarnir taka að strá um sig með gjafafénu, jafnvel þótt aðrir eigi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar