Gullkálf í Skálholt? Hjalti Hugason og Sigrún Óskarsdóttir skrifar 9. júlí 2013 06:00 Ríkisstjórn Íslands var heimilað með lögum fyrir réttum 50 árum að afhenda þjóðkirkjunni Skálholt. Staðurinn er einn helsti sögustaður þjóðarinnar. Mikið var því í húfi að vernda hann og byggja upp. Vegleg fjárhagsleg meðgjöf fylgdi afhendingunni og árlega er greidd úr ríkissjóði ákveðin upphæð til staðarins. Það er ánægjulegt að Skálholt hefur fest sig í sessi sem kirkjulegt menningarsetur. Þau eru fjöldamörg sem vitna um að þar hafi gefist dýrmæt hvíld, endurnæring og uppbygging. Staðsetningin utan skarkala daglegs lífs, helgihald, fræðsla og umhverfið allt hjálpar til að svo megi verða.Skilmálar sem fylgdu Í athugasemdum með frumvarpi til ofangreindra laga er forsendum afhendingarinnar lýst: Til þess að þessi verðmæta alþjóðareign megi ávaxtast á komandi tímum til sem mestra nytja fyrir þjóðina í andlegu og menningarlegu tilliti, þarf frumkvæði og forgöngu, sem sprettur af áhuga, vakandi ræktarsemi við þá erfð, sem helgar staðinn í meðvitund þjóðarinnar og samtök um að gera hana með tímabærum aðferðum frjóa fyrir nútíð og framtíð. Má þykja eðlilegt, að til kirkjunnar sé einkum horft um þetta og að hún vænti tiltrúar í þessu efni (Alþtíð. 1963AI: 897). Þá kom fram að meðgjöfina með staðnum skyldi nota „til að koma fótum undir stofnanir og starfrækslu, er að mati [kirkjunnar] manna sæma staðnum bezt, svara til nauðsynja og horfa til nytsemda fyrir þjóðina nú á tímum“ (s. st).Skálholt og kolkrabbinn Saga Skálholts hefur verið stormasöm en enn blása kröftugir vindar um staðinn. Um 1100 gaf Gissur Ísleifsson jörðina og stofnaði þar biskupsstól sem standa skyldi meðan landið væri byggt og kristni héldist í því. Skilmálar hans voru haldnir í 700 ár en á einu mesta erfiðleikaskeiði þjóðarsögunnar var Skálholt einkavætt. Hannes Finnsson biskup sá sér leik á borði og keypti jörðina, en hann var giftur inn í helstu auð- og valdaætt landsins. Þar með gleypti kolkrabbinn Skálholt. Væntingar hafa eflaust staðið til að Skálholti væri óhætt í skjóli laganna frá 1963. Svo virðist þó ekki vera. Tilkynning birtist sl. haust í Lögbirtingarblaðinu (103/2012) um skráningu hlutafélags undir því yfirlætislausa heiti Gestaþjónustan ehf. Í lýsingu á markmiðum félagsins segir: Tilgangur félagsins er að vera rekstrar- og framkvæmdafélag í menningartengdri ferðaþjónustu, annast endurreisn Miðaldadómkirkju í Skálholti og rekstur sýningar — og verslunar og veitingastarfsemi, eignarhald og rekstur fasteigna og lánastarfsemi [leturbr. höf.]. Vonandi eru öll þessi umsvif, t.d. lánastarfsemin, ekki fyrirhuguð í Skálholti! Markmiðum sínum mun Gestaþjónustan þó ekki ná án fulltingis kirkjustjórnarinnar. Í því sambandi ályktaði kirkjuþing 2012 ... að ekki verði horfið frá þeirri deiliskipulagsvinnu í Skálholti sem hafin er og telur að ekki beri að setja þeirri vinnu nein takmörk. Hins vegar brýnir kirkjuþing kirkjuráð og vígslubiskup Skálholtsstiftis að skoða vel allar hliðar þessa máls [þ.e. byggingu „miðaldakirkju“] og skuldbinda kirkjuna ekki með nokkrum hætti, nema eftir víðtæka kynningu og umræðu og blessun kirkjuþings. Kirkjuþing telur brýnt að rekstur Skálholtsstaðar komist í viðunandi horf og skoðað verði ýtarlega hvort bygging miðaldadómkirkju/safnahúss geti orðið liður í þeirri viðleitni, án þess að Skálholt sem helgistaður bíði hnekki. Kirkjuþing leggur áherslu á að staðsetning og fyrirkomulag, verði af áformum, verði með þeim hætti að ásýnd staðarins og andblær haldist og að rekstrarlegur ávinningur staðarins sé tryggður. (http://www.kirkjuthing.is/gerdir/2012/37 (4.7.2013)) Hér með köllum við eftir greinargóðri kynningu á áformum Gestaþjónustunnar, afstöðu kirkjustjórnarinnar til þeirra og opinni umræðu um hvort tveggja. Umræðan verður að fara fram fyrir kirkjuþing í nóvember nk. Málefni Skálholts koma allri þjóðinni við. Ákvörðun um fyrirhugaða mannvirkjagerð snýst um „afhelgun“ Skálholts. Nú er þar höfuðáhersla á kirkjustarf í anda þeirra skilmála sem Gissur setti gjöf sinni um 1100 og íslenska þjóðin 850 árum síðar. Ef áform um „miðaldakirkju“ verða að veruleika mun veraldlegur rekstur, veitinga-, lopapeysu-, lunda- og önnur minjagripasala taka yfir og Skálholt þar með selt í hendur kolkrabbans öðru sinni.Gullkálfur á helgum stað Torvelt er að sjá að „miðaldadómkirkja“ í Skálholti reist á öndverðri 21. öld geti þjónað öðrum tilgangi en að vera sölubúð. Það er ekki annað að sjá en að það sé einmitt hugmyndin. Því virðist fyrst og fremst um gullkálf að ræða, svo vísað sé til forns dæmis sem kirkjan ætti að varast. Bregðist þjóðkirkjan því trausti sem henni var sýnt með afhendingu Skálholts er mikill skaði skeður. Gjöfin verður vissulega ekki aftur tekin. Verði Skálholt „afhelgað“ er kirkjunni og kolkrabbanum á hinn bóginn vorkunnlaust að reka staðinn af þeim tekjum sem gullkálfurinn og dansinn í kringum hann kunna að skapa. Árleg meðgjöf þjóðarinnar með Skálholti ætti þá að falla niður. Það er óþarft að þjóðin leggi fé í þá hít. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Uppskrift að lakari samkeppnishæfni fiskeldis Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Á að brenna ólesnar bækur? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnlaus hraðferð ofan í dauðadal gervigreindar – og leiðin út Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir,Ársæll Guðmundsson,Jóhanna Stella Oddsdóttir,Simon Cramer Larsen,Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Skilgreiningarvald mennskunnar Erna Mist skrifar Skoðun Dýrasta land heims í nafni sjálfstæðisins Inga Valgerður Henrikssen skrifar Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Ef þetta væri barnið þitt Arnar Kjartansson skrifar Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Stjórnlaus hraðferð ofan í dauðadal gervigreindar – og leiðin út Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir,Ársæll Guðmundsson,Jóhanna Stella Oddsdóttir,Simon Cramer Larsen,Helga Þórðardóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir skrifar
Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson Skoðun