Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - ÍR 27-26 Guðmundur Tómas Sigfússon skrifar 16. nóvember 2013 12:57 Mynd/Valli
Eyjamenn sigruðu ÍR-inga með minnsta mun í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í dag. Með sigrinum lyftu Eyjamenn sér upp í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig en skildu gestina eftir í sjötta sætinu með átta stig. ÍR fékk tækifæri til að jafna metin í blálok leiksins en það tókst ekki. Dómurum leiksins urðu þó á mistök þá því ÍBV stillti upp fullmönnuðu liði í lokasókn ÍR þrátt fyrir að hafa misst mann af velli í tveggja mínútuna brottvísun skömmu áður. En leikurinn kláraðist með eins marks sigri ÍBV sem höfðu fjögurra marka forystu í hálfleik, 16-12. Leikurinn fór skemmtilega af stað en Eyjamenn fóru þó aðeins betur af stað og höfðu tveggja marka forystu í byrjun. Þegar Theodór Sigurbjörnsson skoraði af vítapunktinum og kom Eyjamönnum yfir í 9-8 tóku ÍR-ingar við sér og skoruðu fjögur mörk í röð og héldu einhverjir þá að gamanið væri búið, þeim skjátlaðist. Þjálfarar Eyjamanna tóku leikhlé þegar um það bil tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og það skilaði sér vel. Heimamenn skoruðu hvert markið á fætur öðru og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 16-12, en Eyjamenn höfðu þá skorað 7 mörk í röð. Seinni hálfleikurinn fór vel af stað en Björgvin Hólmgeirsson eignaði sér fyrstu mínúturnar þegar hann skoraði fyrstu fjögur mörk ÍR-inga en þá munaði einu marki á liðunum. Næstu mínútur leiksins voru mjög jafnar alveg fram að því að leikmenn Eyjamanna settu í gírinn, þá komust þeir fjórum mörkum yfir, 24-20. Haukur Jónsson markvörður ÍBV varði einungis fimm skot í fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleik sýndi hann áhorfendum úr hverju hann er gerður og varði ellefu bolta. Kristófer Fannar Guðmundsson var drjúgur í marki ÍR-inga og varði sautján skot þrátt fyrir að sitja á bekknum stóran hluta af seinni hálfleiknum. ÍR-ingar náðu að minnka muninn niður í eitt mark þegar um það bil ein mínúta var eftir. Magnús Stefánsson braust í gegnum vörn ÍR-inga og kom Eyjamönnum aftur í tveggja marka forystu. Síðasta mínútan var rosalega spennandi en þá var Guðna vísað af velli með tveggja mínútna brottvísun. Eyjamenn misstu svo boltann en þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum var leikurinn stöðvaður. Þegar hann svo hófst á ný var ÍBV með fullmannað lið á vellinum þó svo að brottvísun Guðna væri enn í gildi. En þetta fór framhjá dómurum leiksins og náðu ÍR-ingar ekki að jafna metin á lokasekúndunum. Niðurstaðan var því eins marks sigur ÍBV.Gunnar: Það geta allir unnið alla „Ég er gríðarlega sáttur, ótrúlegur karakter í strákunum að klára þetta. Þetta var jafn leikur en við náum frumkvæðinu í lokin. Virkilegur baráttusigur og liðsheildin í dag var stórkostleg,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari Eyjamanna eftir sigur sinna manna á ÍR-ingum í dag. Eyjamenn töpuðu fyrir Valsmönnum í síðustu umferð en Gunnar segir gott að vera komnir á beinu brautina með sigrinum í dag. „Þetta er svo jöfn deild og það eru allir að tapa handboltaleikjum. Það geta allir unnið alla og þetta er bara spurning um að halda einbeitingu og að reyna að bæta sig viku frá viku.“ „Það er bikarleikur á þriðjudaginn en svo mætum við Haukum um næstu helgi. Það verður erfiður leikur eins og allir leikir í þessari deild. Þetta eru allt 50/50 leikir,“ sagði Gunnar að lokum sem hlakkar mikið til að mæta KR-ingum í bikarnum.Bjarki: Töpum fyrir HK og Akureyri með svona spilamennsku „Við vorum lélegir, það er bara þannig. Við vorum að flýta okkur of mikið og það varð okkur að falli í dag,“ sagði Bjarki Sigurðsson þjálfari ÍR-inga sem þurftu að sætta sig við tap í dag gegn Eyjamönnum. „Við munum auðvitað reyna allt sem við getum til þess að komast á beinu brautina en miðað spilamennsku okkar í dag þá erum við ekkert að fara á mikið flug,“ sagði Bjarki sem var mjög ósáttur með leik sinna manna. „Það voru mikil vonbrigði að tapa þessum leik í dag þar sem að lið Eyjamanna er vængbrotið á meðan að Róbert er meiddur. Ef við spilum svona á móti HK eða Akureyri þá töpum við gegn þeim líka,“ sagði Bjarki sem er eins og áður segir mjög óánægður með sína menn.
Fótbolti Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Eistland - Ísland | Mikið í húfi í toppslag í Tallinn Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Fleiri fréttir Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli FH - Limoges | Öflugt franskt lið í heimsókn Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Sjá meira