Þekkingar- og nýsköpunarfyrirtækið LSH Þórarinn Guðjónsson skrifar 1. mars 2013 06:00 Landspítali – háskólasjúkrahús er einn stærsti vinnustaður á Íslandi með yfir 4.600 starfsmenn. Stór hluti starfsmanna er sérfræðimenntaður hvort sem um er að ræða lækna, hjúkrunarfræðinga, lífeindafræðinga, líffræðinga, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfara, sálfræðinga, félagsfræðinga, eðlisfræðinga eða verkfræðinga. Landspítalinn er jafnframt ein stærsta mennta- og vísindastofnun landsins með yfir 1.300 nemendur, þar af marga í rannsóknartengdu framhaldsnámi. Spítalinn er því órjúfanlegur þáttur í háskóla- og þekkingarsamfélaginu og framlag hans er stór þáttur í styrk Háskóla Íslands á alþjóðavettvangi. Á undaförnum árum hafa tengsl spítalans við Háskólann í Reykjavík og aðrar rannsóknastofnanir einnig eflst mikið. Nærtæk dæmi er öflugt samstarf Landspítalans við Hjartavernd og Íslenska erfðagreiningu. Það er hins vegar engum vafa undirorpið að spítalinn er fyrst og fremst sjúkrahús fyrir alla landsmenn. Almenningur reiðir sig á sérfræðiþekkingu starfsmanna og þá aðstöðu sem spítalinn býr yfir. Þetta er svo sem ekki ný vitneskja þar sem óteljandi hetjudáðir eru unnar innan spítalans sem margir þekkja af eigin raun eða gegnum ættingja. Til að viðhalda og auka færni sérfræðinga hvort sem er í tengslum við greiningu, meðhöndlun eða lækningu sjúkdóma þá er nauðsynlegt að stunda rannsóknir og þekkingarsköpun. Margir sérfræðingar sem ráða sig til starfa á háskólasjúkrahúsi gera það vegna væntinga um að geta stundað rannsóknir samhliða klínískum störfum sínum. Þær framfarir sem orðið hafa í meðferð sjúkdóma eiga oftar en ekki uppruna sinn í samstarfi grunnvísindamanna og klínískra sérfræðinga. Staðreyndin er sú að fólk lifir almennt mun lengur í dag en fyrir nokkrum áratugum vegna árangurs í rannsóknum og flutnings á þeirri þekkingu sem verður til yfir í klínísk störf og meðferðir á sjúklingum.Öflugt þekkingarfyrirtæki Í allri umfjöllun um spítalann þessi misserin er lítið rætt hversu öflugt þekkingarfyrirtæki spítalinn er. Það liggur í eðli allra háskólasjúkrahúsa að þar fari fram grunnrannsóknir og nýsköpun og er Landspítalinn engin undantekning þar á. Á spítalanum eru stundaðar fjölbreytilegar rannsóknir, grunnrannsóknir á sjúkdómum, faralds- og lýðheilsurannsóknir og klínískar rannsóknir. Jafnframt er öflugur jarðvegur í hugbúnaðar- og tækniþróun sem skapar þekkingu sem nýtist innan sem utan spítalans. Sum þessara rannsóknaverkefna eru þess eðlis að það verða til einkaleyfi og sprotafyrirtæki sem efla atvinnu og stuðla þannig að auknum hagvexti í þjóðfélaginu. Það er því nauðsynlegt að minna á að þegar Landspítalinn lætur á sjá eins og raun ber vitni og klínísk starfsemi hans molnar niður vegna ófullnægjandi húsakosts, tækjakosts og lágra launa þá er einnig önnur birtingarmynd – þekking- og nýsköpun – sem grotnar niður. Þetta mun leiða til fjárhagslegs- og þekkingarlegs taps. Það tekur langan tíma að byggja upp þekkingu og nýsköpun en að sama skapi tekur það skamman tíma að brjóta það niður með óafturkræfum afleiðingum fyrir samfélagið innan sem utan spítalans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar