Nýta sér neikvæða athygli vegna klámfenginna auglýsinga Marín Manda Magnúsdóttir skrifar 8. júní 2013 00:00
Í apríl var tískuvörumerkið umdeilda American Apparel beðið um að fjarlægja nokkrar myndir frá vefsíðu sinni eftir að auglýsingaeftirlitið (e. Advertising Standards Authority), ASA, í Bretlandi úrskurðaði að þær væru „augljóslega kynferðislegar“. ASA fékk tvær kvartanir vegna ljósmynda á vefsíðu tískuvörumerkisins sem þóttu „móðgandi og kynferðislegar“, en myndirnar sýndu fyrirsætur í viðkvæmum stellingum. Ein myndin þótti mjög gróf, en það var auglýsing fyrir samfellur og sýnir stúlku í háum sokkum sem krýpur á rúmi með fæturna í sundur. „Okkur þykir myndirnar vera mjög kynferðislegar og niðurlægjandi fyrir konur þar sem áherslan er lögð á klof og brjóst fyrirsætunnar en ekki andlit hennar,“ sagði talsmaður ASA við breska blaðið The Sun. Fyrirtækið American Apparel sagðist ætla að gera sitt besta til að fara eftir stöðlum iðnaðarins, þrátt fyrir að þrjá auglýsingar hafi verið bannaðar á rúmlega fjórum mánuðum. Einhverjum þykja myndirnar "móðgandi og kynferðislegar“. Síðastliðinn desember var fyrirtækinu skipað að fjarlægja myndir af berbrjósta fyrirsætum af heimasíðu sinni, en sumar fyrirsæturnar virtust vera undir lögaldri. Það er ekki nýtt af nálinni að vörumerkið hafi fengið kvartanir um ögrandi auglýsingar. Markaðsdeild American Apparel sakar ASA um að einfaldlega banna þeim að fá athygli. Hins vegar hafa talsmenn ASA sagt að þeir geri sér grein fyrir því að American Apparel fái mikla athygli vegna þessa máls og muni nota þessa umdeildu umfjöllun til þess að auglýsa vörumerki sitt enn fremur, en vörumerkið hefur reitt sig á ögrandi myndaefni alveg frá upphafi.
Mest lesið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning Forsetahjónin létu sig ekki vanta Lífið Fleiri fréttir Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Sjá meira