Upplýsingagjöf til ferðamanna Jónas Guðmundsson skrifar 16. janúar 2013 06:00 Það líður varla sá mánuður að ekki sjáist fréttir þess efnis að met hafi verið slegið í fjölda ferðamanna hingað til lands. Líklegt má telja að ferðamenn hafi verið á annan tug prósenta fleiri árið 2012 en árið áður. Einn af jákvæðum þáttum þessarar þróunar er að töluvert fjölgar utan háannatíma, og virðist sem svo að átakið Ísland allt árið sé meðal annars að skila þeim árangri. Aðstæður til ferðalaga hér á landi að vetrarlagi eru gerólíkar aðstæðum að sumarlagi og líklegt má telja að þær séu enn frábrugðnari aðstæðum í heimalandi ferðalangs en sumrin. Öll þekkjum við hversu skjótt veðrið getur breyst, jafnvel skollið á snjóstormur á augabragði. Ekki síður geta aðstæður á yfirborði vega breyst í einni svipan og hvað þá verið af ýmsum toga á ekki svo löngum vegarköflum. Einnig þarf að hafa í huga að þjónusta á vegum er misjöfn og ekki er hægt að ganga út frá því að vegir sé alltaf opnir. Þessar fjölbreytilegu og oft erfiðu aðstæður setja auknar kröfur á ferðaþjónustuaðila varðandi upplýsingagjöf til ferðamanna. Hún má og á ekki eingöngu að snúast um að upplýsa um áhugaverða staði, gistimöguleika og ferðir sem í boði eru. Starfsmenn á gististöðum, á upplýsingamiðstöðvum ferðamanna, bílaleigum og öðrum viðkomu- og dvalarstöðum ferðamanna ættu að hafa inni í sínum þjónustuferlum að spyrja hvert förinni er heitið og ráðleggja þá um þau atriði sem hafa ber í huga til að gera ferðalagið enn betur heppnað.Ferðaáætlun Fyrst og fremst ber alltaf að mæla með því að viðkomandi geri ferðaáætlun og skilji eftir en slíkt má til dæmis gera á vefnum safetravel.is. Einnig er mikilvægt að fólk sé með réttan búnað og má til dæmis nefna að við akstur um landið ætti ætíð að vera teppi eða svefnpoki ásamt einhverju nesti í bílnum. Slíkt kemur sér vel ef för tefst eða ef viðkomandi festir sig sem dæmi. Réttur klæðnaður skiptir einnig miklu máli þó ekki sé gengið lengra en um Dimmuborgir eða að Gullfossi. Búnaðarlista fyrir ýmsar tegundir ferða má finna á vef Safetravel. Upplýsingar um færð og veður má segja að ættu að vera fastur liður í upplýsingagjöf til ferðamanna. Á vef Veðurstofunnar www.vedur má skjótt finna veðurspá og einnig viðvaranir ef spáð er varasömu veðri en einnig má beina ferðalöngum sjálfum á þann vef þar sem hann er á ensku. Á vef Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is má finna upplýsingar um færð á vegum. Á vef Safetravel www.safetravel.is má finna mikið af fróðleik fyrir ferðaþjónustuaðila og ferðamenn. Einnig má þar finna upplýsingar um veður og færð enda markmiðið að þar séu á einum vef allar upplýsingar sem auki líkur á öruggu ferðalagi. Á hverjum vetri sinna sjálfboðaliðar björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar miklum fjölda aðstoðarbeiðna er varða ferðamenn. Eru þær beiðnir af ýmsum toga en ljóst að mörg tilfelli má koma í veg fyrir með aukinni upplýsingagjöf til ferðamanna. Leggjumst öll á eitt og upplýsum okkar gesti um meira en keypta þjónustu og aukum þannig líkur á ánægjulegu og öruggu ferðalagi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar