Ekkert lið hefur misst jafnmarga lykilmenn á milli ára og ÍBV. Sjö fastamenn eru horfnir á braut og illa hefur gengið að fylla í skarð þeirra. Liðið hefur hafnað í 3. sæti þrjú síðustu tímabil en ólíklegt er að komandi tímabil verði eftirminnilegt.
Undanfarin ár hafa Eyjamenn fengið sterka leikmenn frá Bretlandseyjum rétt fyrir mót. Nauðsynlegt er að liðið styrki sig á miðjunni ef ekki á illa að fara í Eyjum. Sömuleiðis er enginn líklegur til þess að raða inn mörkum fyrir Eyjaliðið eins og það er skipað í dag.
Stjarnan: David James
Fyrrverandi landsliðsmarkvörður Englands er stærsta nafnið sem spilað hefur með íslensku félagsliði. Hann þarf þó að hafa hugann við verkefnið, sýna metnað og leiðtogahæfni svo Eyjamenn geti brosað í sumar.
Þjálfarinn
Hermann Hreiðarsson er 38 ára gamall og á sínu fyrsta tímabili með liðið. Hermann hefur spilað yfir 500 deildarleiki á Íslandi og í Englandi og að baki sextán ára atvinnumannaferil en þetta er frumraun hans sem þjálfari.
Nýju andlitin
David James (Bournemouth)
Hermann Hreiðarsson (Coventry)
Gunnar Þorsteinsson (Ipswich)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (Örebro)
Fylgstu með þessum
Víðir Þorvarðarson fær meiri ábyrgð í vængbrotinni sókn ÍBV.
Hvað er langt síðan ...
... liðið varð meistari – 15 ár
... liðið var ekki inn á topp þrjú – 4 ár
... liðið spilaði í B-deild – 5 ár
... liðið varð bikarmeistari – 15 ár
... liðið skoraði flest mörk í deildinni – 9 ár
... Hermann Hreiðarsson lék í ÍBV-búningnum – 16 ár.
Einkunnaspjaldið
Vörnin 4/5
Sóknin 1/5
Þjálfarinn 1/5
Breiddin 1/5
Íslandsmeistari: 3 sinnum (síðast 1998)
Bikarmeistari: 4 sinnum (síðast 1998)
Spáin:
1. sæti: ???
2. sæti: ???
3. sæti: ???
4. sæti: ???
5. sæti: ???
6. sæti: ???
7. sæti: ???
8. sæti: ???
9. sæti: ÍBV
10. sæti: Þór
11. sæti: Keflavík
12. sæti: Víkingur Ólafsvík
