Er hjúkrun aldraðra afgangsstærð? Ólafur G. Skúlason skrifar 2. desember 2013 07:00 Það fór ekki fram hjá neinum þegar hjúkrunarfræðingar á Landspítala sögðu upp störfum síðastliðinn vetur og hrundu þannig af stað atburðarás sem olli því að þáverandi ríkisstjórn setti af stað jafnlaunaátak. Svo fór að hjúkrunarfræðingar sem vinna á stofnunum ríkisins fengu leiðrétt laun sín upp að vissu marki og var það vissulega fyrsta skrefið í rétta átt til þess að jafna launamun kynjanna. Þessa leiðréttingu hafa hins vegar einungis fengið hjúkrunarfræðingar, og aðrar kvennastéttir í heilbrigðisþjónustu, sem starfa hjá ríkinu. Nú er það svo að hjúkrunarfræðingar sem vinna á stofnunum sem tilheyra Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu sem flest hjúkrunarheimili tilheyra, hjá Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og Reykjalundi hafa enga leiðréttingu fengið og er nú svo komið að verulegur launamunur hefur skapast á milli hjúkrunarfræðinga eftir því hver vinnuveitandi þeirra er. Mér þykir skrítið að ekki sé gengið alla leið í jafnlaunaátakinu þar sem flestar stofnanir þessara vinnuveitenda eru að miklu leyti fjármagnaðar af ríkinu þegar upp er staðið. Þar sem hjúkrunarfræðingar hjá ríkinu búa við betri kjör en aðrir hjúkrunarfræðingar veldur það því að ofangreindir vinnuveitendur eiga orðið erfitt með að fá hjúkrunarfræðinga til starfa. Við bætist að þeir sem nú þegar eru í starfi eru farnir að líta í kringum sig eftir betur launuðum stöðum og horfa þá til starfa á sjúkrahúsum. Af þessu hef ég verulegar áhyggjur. Þjóðin eldist og stórir árgangar nálgast nú efri árin. Því er það mitt mat að aldrei hefur verið meiri þörf fyrir öfluga og faglega hjúkrun aldraðra en einmitt nú. Það yrði miður ef flótti hjúkrunarfræðinga úr öldrunargeiranum, endurhæfingu og heimahjúkrun yrði í raun. Við verðum að tryggja að gæði hjúkrunarþjónustu aldraðra á Íslandi sé til fyrirmyndar og næst það með vel menntuðum hjúkrunarfræðingum á sviði öldrunarhjúkrunar. Nú liggja fyrir Alþingi fjáraukalög fyrir árið 2013 og hvet ég stjórnvöld þessa lands og þingmenn alla til að forgangsraða málunum þannig að hjúkrun (h)eldri borgara verði tryggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Það fór ekki fram hjá neinum þegar hjúkrunarfræðingar á Landspítala sögðu upp störfum síðastliðinn vetur og hrundu þannig af stað atburðarás sem olli því að þáverandi ríkisstjórn setti af stað jafnlaunaátak. Svo fór að hjúkrunarfræðingar sem vinna á stofnunum ríkisins fengu leiðrétt laun sín upp að vissu marki og var það vissulega fyrsta skrefið í rétta átt til þess að jafna launamun kynjanna. Þessa leiðréttingu hafa hins vegar einungis fengið hjúkrunarfræðingar, og aðrar kvennastéttir í heilbrigðisþjónustu, sem starfa hjá ríkinu. Nú er það svo að hjúkrunarfræðingar sem vinna á stofnunum sem tilheyra Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu sem flest hjúkrunarheimili tilheyra, hjá Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og Reykjalundi hafa enga leiðréttingu fengið og er nú svo komið að verulegur launamunur hefur skapast á milli hjúkrunarfræðinga eftir því hver vinnuveitandi þeirra er. Mér þykir skrítið að ekki sé gengið alla leið í jafnlaunaátakinu þar sem flestar stofnanir þessara vinnuveitenda eru að miklu leyti fjármagnaðar af ríkinu þegar upp er staðið. Þar sem hjúkrunarfræðingar hjá ríkinu búa við betri kjör en aðrir hjúkrunarfræðingar veldur það því að ofangreindir vinnuveitendur eiga orðið erfitt með að fá hjúkrunarfræðinga til starfa. Við bætist að þeir sem nú þegar eru í starfi eru farnir að líta í kringum sig eftir betur launuðum stöðum og horfa þá til starfa á sjúkrahúsum. Af þessu hef ég verulegar áhyggjur. Þjóðin eldist og stórir árgangar nálgast nú efri árin. Því er það mitt mat að aldrei hefur verið meiri þörf fyrir öfluga og faglega hjúkrun aldraðra en einmitt nú. Það yrði miður ef flótti hjúkrunarfræðinga úr öldrunargeiranum, endurhæfingu og heimahjúkrun yrði í raun. Við verðum að tryggja að gæði hjúkrunarþjónustu aldraðra á Íslandi sé til fyrirmyndar og næst það með vel menntuðum hjúkrunarfræðingum á sviði öldrunarhjúkrunar. Nú liggja fyrir Alþingi fjáraukalög fyrir árið 2013 og hvet ég stjórnvöld þessa lands og þingmenn alla til að forgangsraða málunum þannig að hjúkrun (h)eldri borgara verði tryggð.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar